Leita lækningamáttar í augnkúlu karfa Svavar Hávarðarson skrifar 4. apríl 2015 10:00 Rannveig Björnsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri og fagstjóri hjá Matís.
Gamalt húsráð íslenskra sjómanna varð kveikja að verkefni Matís og Háskólans á Akureyri þar sem reynt er að varpa ljósi á hvort slím úr karfaauga hafi eftirsóknarverða lífvirkni. Markmiðið er að nýta efni sem úr augnslíminu koma í ýmsan iðnað, svo sem í snyrtivörur og fæðubótarefni. Rannveig Björnsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri og fagstjóri hjá Matís, segir að þrátt fyrir að allir sjómenn viti af græðandi virkni vökvans sem úr karfaauganu kemur þá hafi efnasamsetning hans og eiginleikar aldrei verið skoðaðir. Fyrstu niðurstöður segir Rannveig vera í raun margþættar. Andoxunarvirkni fannst í augnslími karfans, en þó ágæti hennar sé mögulega umdeilt þá sé ljóst að nýtingarmöguleikarnir geta verið margvíslegir.Að troða sárum fingri í auga karfans hefur sannast að hafi græðandi áhrif.„Andoxunarvirkni er mjög áhugaverð í snyrtivöruiðnaði, sem styður eitt meginmarkmið rannsóknarinnar. Við vitum auk þess hvað er af próteinum, fitu og vökva í augnslíminu. Einnig hvort eitthvað tapist við mismunandi verkun eða vinnslu; frystingu eða þurrkun við mismunandi aðstæður. Bakteríuhamlandi áhrif mældust ekki í augnvökvanum,“ segir Rannveig og því sé næsta takmark að leita til dæmis bólgueyðandi áhrifa og að sama skapi verkjastillandi og græðandi áhrifa. „Við höfum hugsað okkur að skoða líka önnur fiskaugu, því fersk karfaaugu eru ekki auðfengin, en hvort ferskleiki skiptir hér öllu máli vitum við ekki fyrir víst. Mig langar að skoða augun í laxi og bleikju,“ segir Rannveig og bætir við að eiginleikar augnvökva karfans séu mjög sérstakir, en hann er sérstaklega seigfljótandi og erfitt að ná innvolsi augnanna í sundur. „Því væri fróðlegt að vita hvort vökvinn er ekki gott íblöndunarefni, og mér varð hugsað til allra þessara náttúrusnyrtivara þar sem grunnurinn er keyptur erlendis. Takist þetta eru tvær flugur slegnar í einu höggi; eiginleikar fást frá grunninum til viðbótar við þá sem upphaflega er sóst eftir,“ segir Rannveig sem þegar hefur fundið fyrir áhuga sérfræðinga í þróun snyrtivara.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira