Segja réttarfarið í Egyptalandi hrunið guðsteinn bjarnason skrifar 13. apríl 2015 07:00 Mohammed Badie, leiðtogi Bræðralags múslima, bak við lás og slá í Egyptalandi síðastliðið sumar.
Framkvæmdastjóri alþjóðlegu mannréttindasamtakanna Human Rights Watch segir réttarhöldin yfir Mohammed Badie og fleiri leiðtogum Bræðralags múslima í Egyptalandi hafa verið skrípaleik. „Sú staðreynd að þeir sem sögðu frá fjöldamorðunum 2013 gætu farið í ævilangt fangelsi en hinir sem frömdu þessi dráp fái opinbera viðurkenningu sýnir fullkomlega hið ömurlega hrun réttarfarsins á þessum breytingatímum í Egyptalandi,“ hefur Reuters-fréttastofan eftir Sarah Leah Whitson, sem er framkvæmdastjóri samtakanna í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Dómstóll í Egyptalandi staðfesti á laugardaginn líflátsdóma yfir Badie og þrettán öðrum háttsettum leiðtogum Bræðralagsins. Þeir voru upphaflega dæmdir til dauða 28. apríl síðastliðinn eftir átta mínútna réttarhöld. Alls voru nærri 700 manns dæmdir til dauða þennan dag eftir réttarhöld, þar sem sakborningarnir fengu enga möguleika til þess að koma við vörnum. Mennirnir hlutu þessa dóma fyrir að hvetja til ofbeldis og morða eftir að egypski herinn hafði steypt stjórn Mohammeds Morsi forseta sumarið 2013. Bræðralag múslima mótmælti stjórnarbyltingunni og hundruð manna létu lífið þegar herinn réðst til atlögu gegn mótmælendum. Enn er hægt að áfrýja dómunum til hæstaréttar í Egyptalandi.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira