Innlent

Flestir sóttu um í Kvennó, MH og Versló

Atli Ísleifsson skrifar
Alls völdu 30 prósent allra sem tóku þátt Kvennó, MH eða Verzló sem fyrsta val.
Alls völdu 30 prósent allra sem tóku þátt Kvennó, MH eða Verzló sem fyrsta val. Vísir/Stefán
Forinnritun 10. bekkinga í framhaldsskóla er nú lokið. Alls tóku 3.824 nemendur þátt sem þýðir að um 88 prósent allra 10. bekkinga eru búnir að velja sér framhaldsskóla.

Í frétt menntamálaráðuneytisins segir að Kvennaskólinn, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Verslunarskóli Íslands hafi fengið flestar umsóknir. Alls völdu 30 prósent allra sem tóku þátt þessa þrjá skóla sem sitt fyrsta val og því sé ljóst að umræddir skólar fengu umsóknir frá töluvert fleiri nemendum en þeir geta tekið við.

„Vert er að benda á að allir þessir skólar eru meðal þeirra sem koma til með að bjóða upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs næsta haust.

Niðurstöður forinnritunar eru með svipuðum hætti og síðasta vor en þá komust um 98% nemenda inn í annan af þeim skólum sem þeir völdu sér,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×