Úrskurðaður í gæsluvarðhald: Grunaður um þjófnað og að tengjast skipulögðum erlendum glæpasamtökum Jóhann Óli Eiðsson skrifar 30. september 2015 22:00 Hæstiréttur Íslands. vísir/gva
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einstaklingi sem grunaður er um að hafa stolið ýmsum munum að verðmæti um milljón króna. Á dvalarstað mannsins fannst kvittun fyrir póstsendingu sem var 18,5 kíló að þyngd og leikur grunur á að hann hafi komið þýfi úr landi. Maðurinn var handtekinn ásamt félaga sínum á dvalarstað þeirra þann 27. september síðastliðinn. Þar fannst mikið magn af ætluðu þýfi. Þegar hafi verið borin kennsl á hluta munanna sem stolnar vörur frá verlsunum á höfuðborgarsvæðinu. Að auki hafi þeir áður komið í kast við lögin en í ágústmánuði voru þeir grunaðir um þjófnað í verslunum í Kópavogi, Reykjavík og Selfossi. Stálu þeir meðal annars matvöru og snyrtivörum. Mennirnir tveir sem um ræðir komu til landsins í júlí og hafa báðir stöðu hælisleitanda hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá Europol er maðurinn grunaður um fjölda brota á Norðurlöndunum. Grunur leikur á að maðurinn tengist skipulagðri glæpastarfsemi. Það er mat lögreglu að brýnt sé að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus en veruleg hætta sé talin vera á því að hann kunni að torveldi rannsókn málsins gangi hann laus, svo sem með því að tala við mögulega samverkamenn sína og reyna að hafa áhrif á þeirra framburð og koma undan þýfi. Hæstiréttur féllst á röksemdir héraðsdóms um að maðurinn sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Var maðurinn því úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag til klukkan 16.00. Sætir hann einangrun á meðan varðhaldinu stendur.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Sjá meira