Ár frá falli Sanaa Samúel Karl Ólason skrifar 21. september 2015 14:00 Yfirvöld Sádi-Arabíu hafa verið harðlega gagnrýnd vegna mannfalls borgara í loftárásum í Jemen. Vísir/EPA
Ár er nú liðið frá því að Hútar ráku Abedrabbo Mansour, forseta Jemen, frá höfuðborginni Sanaa. Þeim hefur tekist að halda höfuðborginni og öðrum svæðum í Jemen. Þar áður höfðu Hútar barist gegn al-Qaeda og ættbálka í Norður-Jemen um mánaðaskeið. Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu nýlega átökin og þögnina um hve mikil áhrif þessi átök hafa haft á almenning í Jemen. Það var svo í mars sem að Hútar eltu Mansour til borgarinnar Aden og ráku hann úr landi. Þá hófu Sádar loftárásir sínar gegn þeim. Þrátt fyrir miklar loftárásir Sádi-Arabíu, sem vilja koma forsetanum aftur til valda, og hernaðaraðgerðir á jörðu niðri hafa Hútar haldið Sanaa. Hins vegar hafa þeir verið hraktir úr Aden og fjórum öðrum héröðum í suðurhluta Jemen. Hútar teljast til sjíta múslima og eru þeir studdir af Íran og hermönnum sem eru hliðhollir Ali Abdullah Saleh. Sókn þeirra stöðvaði gerð nýrrar stjórnarskrár Jemen, sem átti að gera ríkið að sambandsríki sex héraða. Hútar, sem segjast hafa verið hafðir á hliðarlínunum lengi, tóku þátt í gerð stjórnarskrárinnar. Þeir eru hins vegar alfarið mótfallnir því að skipta þessu fátæka ríki upp.Á nokkrum árum áður en átökin hófust höfðu hryðjuverkasamtökin al-Qaeda aukið umsvif sín í Jemen. Hins vegar hefur Íslamska ríkið aukið umsvif sín á kostnað al-Qaeda síðan átökin hófust. Hútar berjast nú gegn vopnuðum sveitum sem eru þjálfaðar af bandalagi Sáda og fá þeir vopn frá þeim einnig. Þeim sveitum hefur gengið vel gegn Hútum og hafa verið studdar með loftárásum og nálgast þær Sanaa óðfluga. Minnst tvö þúsund almennir borgarar hafa látið lífið í átökunum og minnst fjögur þúsund hafa særst, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. Al-Jazeera segir hins vegar að minnst 4.500 hafi látið lífið. Átök í höfuðborginni munu líklega leiða til frekari þjáninga almennra borgara og því segir Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna að nauðsynlegt sé að finna lausn á deilunni. Átökin hafa orðið til þess að gífurlegar skemmdir hafa verið unnar á sjúkrahúsum og öðrum stofnunum þessa fátæka lands. Þau sjúkrahús sem enn eru starfrækt etja kappi við birgðaleysi og skort á eldsneyti til að halda vélum og tækjum gangandi. Jemen flytur inn um 70 prósent af því eldsneyti sem notað er í landinu og öll þau lyf sem notuð eru.
Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Fleiri fréttir Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Sjá meira