Vegavinnumenn á Hellisheiði hætta lífi sínu á hverjum degi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. september 2015 19:30
Vegavinnumenn á Hellisheiði segjast hætta lífi sínu á hverjum degi á svæðinu, þar sem hraðatakmarkanir og merkingar séu ekki virtar. Ökumaðurinn, sem keyrði á verkamann á Hellisheiði um helgina og ók svo í burtu, er enn ófundinn. Kolbeinn Sigurðsson var við vegavinnu á Hellisheiði þegar keyrt var á hann, en þar er verið að tvöfalda veginn. Hvítur jepplingur tók þá fram úr tveimur kyrrstæðum bílum og fór inn á öfugan vegarhelming á miklum hraða. Afleiðingarnar urðu þær að þrjú rifbein Kolbeins brotnuðu, kviðveggur marðist og milta særðist. Hann segir ólíðandi hvernig ökumenn keyra um heiðina. Þeir virði hvorki merkingar né hraðatakmarkanir. „Við erum bara í stórhættu allan daginn. Ístak er með verkamenn þarna sem eru á vegunum og þeir eru í stórhættu. Ökumenn pæla ekkert í þeim. Við tölum oft um það að við þökkum fyrir að komast heilir heim á hverjum einasta degi. “ segir Kolbeinn. Ökumaðurinn sem keyrði á hann stöðvaði ekki bílinn eftir slysið heldur keyrði áfram leiðar sinnar. Lögreglan lýsti eftir ökumanninum í gær en hann er enn ófundinn. Verið er að rannsaka málið og fara yfir hraðamyndavélar á svæðinu. „Samkvæmt því sem að lögreglan sem tók skýrslu af mér og læknirinn sögðu þá er þetta eiginlega bara tilraun til manndráps. Hann tekur fram úr umferð sem er stöðvuð vegna framkvæmda. Hann stofnar mínu lífi í hættu og hann stofnar sínu lífi í hættu,“ segir Kolbeinn. Yfirmaður Kolbeins sagði í viðtali við mbl.is fyrr í sumar að það væri tímaspursmál hvenær slys yrði á starfsfólki á Hellisheiði þrátt fyrir að merkingar séu þar mjög sýnilegar. „Þetta tekur á okkur alla, það er enginn spurning. Þetta er enn af félögunum og það er alltaf erfitt þegar svona skeður,“ segir Barði Kristjánsson verkstjóri. Barði segir tillitsleysi ökufólks óboðlegt. „Við reyndum að hægja á bílum hérna fyrir nokkrum dögum og við fengum bara fokkmerkið. Þeir bara eins og sagt er slógu ekki af,“ segir hann og vill sjá umbætur. „Það þarf bara að herða eftirlit á vinnusvæðum og fara að taka upp færanlega myndavélar þannig að ef keyrt er of hratt þá kemur sektin heim um lúguna. Þetta er bara hættulegt umhverfi, og ekki boðlegt neinum,“ segir Barði.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Sjá meira