Aftur lagt til að kosningaaldur verði lækkaður sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 21. september 2015 20:53 Þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar vilja lækka kosningaaldur í sextán ár. vísir/valli
Tveir þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingar hafa lagt fram, öðru sinni, frumvarp þess efnis að kosningaaldur verði færður úr átján árum í sextán ár. Leggja þau til að lögin öðlist gildi þegar í stað. Það eru þau Árni Páll Árnason og Katrín Jakobsdóttir sem leggja frumvarpið fram. Það var lagt fram í mars síðastliðnum en varð ekki útrætt og því endurflutt. Í greinargerð með frumvarpinu segir að rýmkun kosningaaldurs sé meðal brýnna umræðuefna samtímans og að dræm og dvínandi þátttaka ungs fólks í kosningum valdi áhyggjum af framtíð lýðræðis. Líkur þyki til þess að fólk geti orðið afhuga stjórnmálaþátttöku og snúist af braut lýðræðislegrar stefnumótunar og ákvarðanaþátttöku. Austurríki er eina landið í Evrópu sem stigið hefur þetta skref til fulls en þar var kosningaaldur lækkaður í sextán ár árið 2007 og kjörgengisaldur í átján ár, nema í forsetakosningum þars em hann er 35 ár. Þá hefur kosningaaldur til héraðs- og sveitarstjórna verið lækkaður í nokkrum Evrópulöndum, en þar má nefna Noreg þar sem sextán ára aldurstakmarki var komið á í tilraunaskyni í tuttugu sveitarfélögum. Samfylkingin hefur samþykkt ályktun um sextán ára kosningaaldur, en þingmenn Vinstri grænna hafa tvisvar áður flutt þingmál efnislega samhljóða þessu frumvarpi. Frumvarpið má sjá í heild hér.
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira