Innlent

Hundruð mótmæla skipulagstillögu Hafnarfjarðarbæjar

Sveinn Arnarsson skrifar
Mikið jarðrask hefur átt sér stað á lóðinni við Stekkjarberg 9. Umhverfisstofnun bendir á að hraunmyndanir og mýrar hafi verið friðlýstar 2009.
Mikið jarðrask hefur átt sér stað á lóðinni við Stekkjarberg 9. Umhverfisstofnun bendir á að hraunmyndanir og mýrar hafi verið friðlýstar 2009. vísir/valli
Umdeild deiliskipulagstillaga um breytingu á einbýlishúsalóð við Stekkjarberg í Hafnarfirði var send aftur til skipulagsnefndar bæjarins vegna formgalla. Skipulagsnefnd hafði áður samþykkt að láta byggja 13 íbúðir á einni einbýlishúsalóð á rótgrónum stað í hverfinu.

Einbýlishúsalóðin stendur við friðlýstan fólkvang og hafa jarðvegsframkvæmdir á lóðinni skaðað friðlýsta svæðið að mati lögfræðings nágranna. Umhverfisstofnun og nágrannar hafa lagst hart gegn breytingunni á einni lóð umfram aðra á svæðinu.

Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður íbúanna beggja vegna lóðarinnar.
Einbýlishúsalóðin er í eigu Ágústs Más Ármanns, fyrrverandi stjórnarmanns í BYR Sparisjóði. Hann keypti lóðina af syni sínum, fjárfestinum Magnúsi Ármann, sem hafði í hyggju að byggja sér eitt þúsund fermetra einbýlishús á lóðinni stóru fyrir um tíu árum.

Ágúst Már lét arkitekta teikna fyrir sig breytt skipulag á lóðinni, tvær byggingar með um 13 íbúðum. Tillagan gengur út á tólfföldun á nýtingarhlutfalli lóðarinnar frá því sem nú er. Við þetta sættu nágrannar sig ekki og furðuðu sig á því að skipulagsnefnd skyldi fara með málið áfram og samþykkja það fyrir bæjarstjórn. Á annað hundrað bæjarbúa skrifuðu undir mótmæli gegn fyrirhugaðri breytingu sem myndi þýða stórfelldar breytingar á svæðinu.

Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður íbúanna beggja vegna lóðarinnar, segir málið lykta af gamaldags spillingu. Þarna sé um friðlýstan fólkvang að ræða og þessi gerningur sé til þess fallinn að eyðileggja það svæði með öllu. „Umhverfisstofnun hefur gefið það út að það þyrfti að skoða mögulega nýbyggingu á svæðinu mun betur.

Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi.
Einnig finnst umbjóðendum mínum, einbýlishúsaeigendum við götuna, það skjóta skökku við að aðeins ein lóð sé tekin fyrir og deiliskipulögð nákvæmlega eftir höfði eiganda lóðarinnar. Verið er að fórna hagsmunum almennings fyrir einstaklingshagsmuni, algjörlega að óþörfu,“ segir Einar Gautur. Ljóst má vera að söluandvirði þrettán nýrra íbúða á þessu svæði hleypur samanlagt á mörg hundruð milljónum króna.

Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, telur eðlilegt að skoða málið í víðara samhengi áður en farið er í að skipuleggja eina lóð. „Lóðin liggur við friðlýstan fólkvang á svæðinu og á meðan hópur er að störfum innan bæjarfélagsins um þéttingu byggðar er skrítið að þessi deiliskipulagstillaga sé keyrð í gegn,“ segir Adda María.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×