Látinn spænskur læknir fannst á lífi í ítölskum skógi Atli Ísleifsson skrifar 11. nóvember 2015 13:09 Læknirinn yfirgaf heimili sitt í Sevilla árið 1995 en hann glímdi við alvarlegt þunglyndi á þeim tíma. Vísir/Getty
Spænskur læknir sem lýstur var látinn árið 2010 hefur fundist á lífi í ítölskum skógi, um tuttugu árum eftir að hann hvarf. Að sögn fundu tveir sveppatínslumenn hinn 47 ára Carlos Sanchez Ortiz De Salazar fyrir tveimur vikum og var hann „óhreinn í framan og með mikið skegg“.Í frétt Sky News segir að læknirinn hafi sýnt sveppatínslumönnunum vegabréf sitt til að sanna hver hann væri og á hann að hafa sagst vera spænskur, heita Carlos og búið þarna frá árinu 1997. „Ég vil ekki lifa á meðal fólks. Nú þegar þið hafið fundið mig verð ég að fara í burtu,“ á Carlos að hafa við mennina. Læknirinn yfirgaf heimili sitt í Sevilla árið 1995. Hann glímdi við alvarlegt þunglyndi á þeim tíma og virðist á endanum hafa flutt í skóg við Maremma í Toscana-héraði á Ítalíu og dvalið þar síðan. Maðurinn var lýstur látinn fjórtán árum eftir að hann hvarf þar sem ekkert hafði spurst til hans. Fjölskylda mannsins reyndi að hafa uppi á honum um helgina eftir að fréttir bárust af fundi sveppatínslumannanna, en Carlos er nú horfinn á nýjan leik. Amelia, móðir mannsins, segir mikilvægast að vita til þess að sonur sinn sé á lífi. „Við virðum vilja hans og frelsi en við förum ekki fyrr en við höfum hann í aftur í örmum okkar – jafnvel þó það sé í eitt síðasta skipti.“
Mest lesið Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Innlent Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Erlent „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Innlent Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Sjá meira