Á annan tug látnir vegna gróðurelda í Síberíu guðsteinn bjarnason skrifar 14. apríl 2015 07:00 Þykkur reykur lá yfir svæðinu þar sem eldarnir geisuðu. nordicphotos/AFP
Þúsundir Rússa hafa hrakist að heiman síðustu daga vegna gróðurelda sem geisað hafa í Khakassíuhéraði, sem er sunnan til í Síberíu, skammt norður af Mongólíu. Að minnsta kosti 23 höfðu látið lífið í gær og hátt í fimm þúsund manns höfðu hrakist frá heimilum sínum vegna eldanna. Meira en þúsund heimili hafa eyðilagst. Meira en 900 höfðu þurft á læknisaðstoð að halda og um hundrað manns voru fluttir á sjúkrahús, að sögn Reuters-fréttaveitunnar. Þúsundir slökkviliðsmanna hafa tekið þátt í slökkvistarfinu. Í gær hafði náðst sá árangur með baráttunni að tekist hafði að slökkva elda í öllum þorpum á þessu svæði, en þau skipta tugum. Mikið eignatjón er sagt hafa orðið vegna eldanna. Þar á meðal hafi grunnskóli brunnið til grunna. Þá hafa þúsundir dýra orðið eldunum að bráð, þar á meðal sauðfé og nautgripir. Miklir hitar eru á þessum slóðum og hvassviðri, sem gerir það að verkum að eldarnir breiðast hratt út. Í gær höfðu einnig kviknað gróðureldar annars staðar í Síberíu, nokkru austar, og höfðu kostað tvo menn þar lífið. Vladimír Pútín forseti hélt sjálfur á staðinn og tók að sér stjórn neyðaraðgerða, að því er haft var eftir talsmanni hans í fjölmiðlum. Stjórnvöld lýstu yfir neyðarástandi og segja eldana hafa kviknað vegna kæruleysis við meðferð á eldi. Bændur hafi verið að kveikja í sinu, og verða einhverjir þeirra sóttir til saka. Algengt er að bændur á þessum slóðum kveiki í sinu í lok vetrar. „Eldarnir hefðu ekki kviknað ef einhverjir hefðu ekki verið að leika sér með eldspýtur,“ hefur rússneski fjölmiðillinn RT eftir Alexander Tsjúpríjan, aðstoðarráðherra í Kakhassíu. „Það var fullorðið fólk en ekki börn sem gerði þetta.“ Hann segir atburði af þessu tagi endurtaka sig árlega, en undanfarin ár hefur ástandið nokkrum sinnum orðið óvenju slæmt í Rússlandi. Fyrir fimm árum kostuðu gróðureldar tugi manna lífið í Rússlandi, þegar þurrkar og sumarhitar urðu óvenju miklir.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Innlent Fleiri fréttir Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Sjá meira