Spánverjar standa frammi fyrir breyttu pólitísku landslagi Atli Ísleifsson skrifar 24. maí 2015 22:32 Spár Antena 3 er flokkurinn PP stærsti flokkurinn í ellefu af þrettán héruðum, en náði hvergi hreinum meirihluta. Vísir/AFP
Kosið var til sveitarstjórna á Spáni í dag og standa landsmenn nú frammi fyrir breyttu pólitísku landslagi eftir að talið var upp úr kjörkössunum. Spánverjar virðast hafa sagt skilið við tveggja flokka kerfi sitt og reynir nú á hvort flokkar, sem áður hafa ekki átt samleið, geti unnið saman. Kosið var til stjórna í þrettán héruðum og um átta þúsund sveitarfélögum. Skoðanakannanir bentu til þess að Spánverjar væru orðnir langþreyttir á meintri spillingu stóru flokkanna tveggja, Íhaldsflokksins PP og sósíalistaflokksins PSOE, stöðugum niðurskurði og miklu atvinnuleysi. Fyrstu tölur bentu til þess að nýir flokkar hafi víða náð inn mönnum í stjórnir sveitarfélaganna og neyðast stóru flokkarnir því til að bjóða þeim til viðræðna. Vinstriflokkurinn Podemos og miðjuflokkurinn Ciudadanos náðu víða mjög góðum árangri, en flokkarnir eru hugmyndafræðilega ólíkir en sameinaðir í baráttunni gegn spillingu og fylgjandi aukni gagnsæi. Samkvæmt útgönguspá Antena 3 er flokkurinn PP stærsti flokkurinn í ellefu af þrettán héruðum, en náði hvergi hreinum meirihluta. Í Madríd er PP búinn að vera við völd í 24 ár, en svo virðist sem flokkurinn hafi nú misst meirihluta sinn. Sigurvegar kosninganna í höfuðborginni virðist vera flokkurinn Ahora Madrid, sem tengist vinstriflokknum Podemos. Podemos náði einnig góðum árangri bæði í Valencia og Barcelona.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira