Vilja konu á 20 dollara seðilinn Anna Guðjónsdóttir skrifar 10. apríl 2015 15:22 Andrew Jackson prýðir nú seðilinn. Vísir/Getty
Hópur fólks í Bandaríkjunum kýs nú milli fjögurra kvenna sem það telur að eigi skilið að prýða 20 dollara seðilinn. Andrew Jackson, sjöundi forseti Bandaríkjanna, er nú á peningnum. Konurnar sem kosið er á milli eru fyrrum forsetafrúin Eleanor Roosevelt, Wilma Mankiller, fyrsti kvenkyns foringi indíánaættbálks, og mannréttindasinnarnir Harriet Tubman og Rosa Parks. Ástæða þess að hópurinn einblínir á 20 dollara seðilinn er tvíþætt. Annars vegar vegna tengingar Andrew Jackson við þrautasögu indíána í Bandaríkjunum, en hann skrifaði undir frumvarp árið 1830 sem neyddi indíána til að halda burt af löndum sínum. Hin ástæðan er sú að árið 2020 er hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna í Bandaríkjunum.Rosa Parks er ein þeirra sem kosið er um.Vísir/GettyPeningunum ekki breytt síðan 1929Hópurinn sem stendur fyrir kosningunni kallar sig Women on 20s en ekki hefur verið ákveðið hversu lengi kosningin mun standa yfir. Upprunalega var kosið á milli 100 kvenna þar til konunum var fækkað niður í fjórar. Roosevelt, Tubman og Parks hafa allar fengið yfir 100 þúsund atkvæði hver. Talsmaður hópsins, Susan Ades Stone, segir ekki skrítið að þessar konur hljóti svona mikla athygli. Konurnar séu vel þekkt nöfn sem fólk þekkir frá skólagöngu sinni og að vilji sé fyrir því að fá konu á seðilinn sem hefur haft áhrif á líf fólks. Hópurinn hefur farið fram á samvinnu við Hvíta húsið til að vekja enn frekari athygli á hugmyndinni og fá fleiri til að kjósa. Myndum á dollaraseðlum Bandaríkjanna hefur ekki verið breytt síðan 1929.
Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Erlent Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Erlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Fleiri fréttir Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Sjá meira