Innlent

Öllum veiðigræjunum stolið: „Tilfinningalega tjónið er gífurlegt“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Á myndinni sést Jón Gunnar íklæddur hluta þess fatnaðar sem var numinn á brott.
Á myndinni sést Jón Gunnar íklæddur hluta þess fatnaðar sem var numinn á brott. mynd/jón gunnar
„Satt best að segja þá er ég í algjöru rusli,“ segir Jón Gunnar Benjamínsson í samtali við Vísi en fyrir skemmstu fóru óprúttnir aðilar ránshendi um geymslur fjölbýlishúss er hann býr í.

Meðal þess sem þjófarnir höfðu á brott þrjár veiðistangir, fimm veiðihjól, vöðlujakka, veiðivesti, flugubox, vélsleðafatnað, haglaskot og fleyg sem búið var að grafa nafn Jóns Gunnars í auk Liverpool merkisins. Það skal tekið fram að þetta er alls ekki tæmandi talning.

„Fjárhagslega er tjónið alls ekki óviðráðanlegt en tilfinningalega og veraldlega tjónið er gífurlegt. Þetta eru hlutir sem maður hefur verið marga áratugi að safna saman og það að halda áfram að veiða var stór hluti þess að ég kom mér aftur út í lífið,“ segir Jón Gunnar en árið 2007 lenti hann í bílslysi sem hafði það í för með sér að hann er nú lamaður fyrir neðan mitti og bundinn við hjólastól.

Sjá einnig: Með einkanúmerið I'M CEO: „Það er auðvitað dass af hroka í þessu“

Verið er að skoða upptökur úr eftirlitsmyndavélum til að reyna að varpa ljósi á hverjir voru þarna að verki. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær innbrotið að hafa átt sér stað en líklegast er að það hafi verið í gærnótt eða fyrrinótt. Jón Gunnar er ekki sá eini sem varð fyrir barðinu á þjófunum því þeir tæmdu einnig geymslur nágranna hans og höfðu meðal annars vélsög á brott með sér. Næsta víst er að fleiri en einn hafi verið þarna að verki.

„Nafnið mitt er grafið í eina stöngina sem var stolið þannig hún hefur ekkert verðgildi. Eða ég get allavega ekki ímyndað mér að nokkur maður vilji nota stöng sem sé merkt öðrum aðila. Hvað þá með flugur sem einhver annar hefur hnýtt og þýða ekkert nema fyrir þann aðila,“ segir Jón en hann býður 100.000 krónur handa þeim sem hefur upplýsingar um þjófana.

„Ég myndi glaður droppa þessu fyrir mitt leiti ef ég fæ dótið mitt aftur. Ég veit ekki hvort löggan er sama sinnis en ef veiðigræjurnar skila sér aftur til mín þá má þetta allt alveg gleymast. Þó ekki sé nema hluti af því,“ segir Jón.

100.000 KRÓNA FUNDARLAUN Í BOÐI!Á síðustu dögum brutust óprúttnir aðilar inn í geymslur í fjölbýlishúsinu að Mánatúni...

Posted by Jón Gunnar Benjamínsson on Friday, 18 September 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×