Gagnrýnir hugmyndir Áslaugar: Dagur segir efni ekki eiga að ráða örlögum fólks Aðalsteinn Kjartansson skrifar 25. september 2015 11:41 Borgarstjóri gagnrýnir ummæli Áslaugar Friðriksdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, á Vísi í dag, þar sem hún segir að einkavæða þurfi í velferðarkerfinu. VÍSIR/STEFÁN
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki bara að velta fyrir sér hagkvæmni útboða í völdum tilvikum, einsog margir gætu haldið, heldur grundvallarbreytingu á samfélagsgerðinni þar sem efni ráði því hverjir fái fyrsta flokks heilbrigðis- og velferðarþjónustu en hinir fái einhvern nýjan grunn, sem á að spara miklar fjárhæðir og hefur ekki verið kynntur.Áslaug vill einkavæða Vísar hann í viðtal við Áslaugu Friðriksdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks á Vísi í dag, þar sem hún segir að einkavæða þurfi í velferðarkerfinu til að mæta þeim þörfum sem fyrir eru og munu skapast í framtíðinni.Áslaug segir öldruðum fjölga og þjónustu í borginni sé ábótavant. Hún vill ráðast í róttækar breytingar.vísir/stefán„Okkur sárvantar meira fé og kerfið sem við erum að reka, það mun ekki duga til að sinna þörfum þessa hóps eftir nokkur ár. Það er það sem blasir við og er búið að blasa við okkur í mörg ár. Hins vegar hefur lítið verið gert og virðist engin vilji eða metnaður til að skoða þetta í grunninn og greina hvernig við gætum farið í að mæta þessum kröfum með bættu kerfi,“ segir hún í viðtalinu. „Bjóðum út verkefnið. Þannig munum við fá meiri fjölbreytni og þau fyrirtæki sem þá myndu vonandi líta dagsins ljós, þau eru betur til þess fallin að fara í þá nýsköpun sem við þurfum í þessum geira.“Minnir á ummæli Ásdísar Höllu Dagur segir að það verði að gera þá kröfu til flokksins að hann kynni þessar hugmyndir margfalt betur og gefi heiðarlega lýsingu á því hverjar verði afleiðingarnar fyrir einstaklinga og samfélag. Líkir hann hugmyndunum við umdeild ummæli Ásdísar Höllu Bragadóttur, forstjóra Sinnum, um mismunandi pakka í heilbrigðiskerfinu. „[Hún] boðaði svipaða sýn á ársfundi Samtaka atvinnulífsins fyrir um tveimur árum og horfði til Albaníu þar sem hægt væri að kaupa brons, silfur eða gullpakka þegar kona kæmi inn á spítala til fæðingar (ég er ekki að skálda þetta - hennar dæmi),“ segir hann. „Albanía er eitt versta heilbrigðiskerfi Evrópu þar sem einungis ríkasta brot samfélagsins hefur ráð á því sem við teljum eðlilega (fyrsta flokks) þjónustu.“ Dagur segir að velferðarsamfélög Norðurlanda byggi á sterkri samhjálp þar sem veitt er þjónusta eftir þörf en greitt er eftir getu. „Þetta á að tryggja jöfn tækifæri og jafnræði þar sem efni ráði ekki örlögum fólks ef það veikist eða þarf aukinn stuðning tímabundið eða til lengdar,“ segir borgarstjórinn.Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins boðar einkavæðingu velferðarþjónustu borgarinnar á forsíðu Fré...Posted by Dagur B. Eggertsson on Friday, September 25, 2015
Tengdar fréttir Föstudagsviðtalið: Dagur er búinn að koma sér út í horn Það er óábyrgt að fara á svig við lögin. Þó að málstaðurinn sé góður. Að gera það þegar fólki hentar af því það telur sig vera með góðan málstað, það ryður bara brautina fyrir því að þegar aðrir komast til valda þá geri þeir slíkt hið sama,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Í vikunni hefur fátt annað verið rætt en sniðganga borgarstjórnar við ísraelskar vörur sem var svo dregin til baka. Boðað var til borgarstjórnarfundar á miðvikudag þar sem Áslaug nefndi nasista í samhengi við aðgerðirnar. Hún baðst síðar afsökunar á framsetningu máls síns. 25. september 2015 07:00 Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Sjá meira
Föstudagsviðtalið: Dagur er búinn að koma sér út í horn Það er óábyrgt að fara á svig við lögin. Þó að málstaðurinn sé góður. Að gera það þegar fólki hentar af því það telur sig vera með góðan málstað, það ryður bara brautina fyrir því að þegar aðrir komast til valda þá geri þeir slíkt hið sama,“ segir Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Í vikunni hefur fátt annað verið rætt en sniðganga borgarstjórnar við ísraelskar vörur sem var svo dregin til baka. Boðað var til borgarstjórnarfundar á miðvikudag þar sem Áslaug nefndi nasista í samhengi við aðgerðirnar. Hún baðst síðar afsökunar á framsetningu máls síns. 25. september 2015 07:00