Með Byrjendalæsi batnaði lestrarárangur í slökustu skólunum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 27. ágúst 2015 16:58
Margir reykvískir skólar tóku að nýta sér Byrjendalæsi eftir að árangur nemenda í lestri í fyrstu fjóru skólunum í borginni sem nýttu sér aðferðina batnaði til muna. „Í Reykjavík fóru fyrstu skólarnir að nota Byrjendalæsi skólaárið 2008-2009, alls fjórir skólar, sem sérstaklega tóku þessa aðferð upp vegna þess að staða nemenda í lestri var töluvert lakari en að meðaltali í Reykjavík. Þremur árum síðar hafði árangur nemenda í lestri í þessum fjórum skólum í lestrarskimuninni Læsi batnað verulega eða úr því að 48% nemenda lásu sér til gagns í 62%. Munur á meðaltali þessara skóla á samræmdum prófum í íslensku í 4. bekk og annarra skóla í Reykjavík fór úr 2,0 í 0,2 á þessum sama tíma. Í nýjustu lesskimun sem fram fór í Reykjavík í vor voru 3 af þessum 4 skólum fyrir ofan meðaltal Reykjavíkur.“ Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Reykjavíkurborgar. „Námsárangur er flókið samspil margra áhrifaþátta í námsumhverfi og bakgrunni nemenda og því hefur það ekki komið skóla- og frístundasviði á óvart að árangur skóla í Byrjendalæsi í Reykjavík sé sveiflukenndur eins og árangur þeirra skóla sem beitt hafa öðrum aðferðum.“ Skóla- og frístundasvið hefur aðallega nýtt lesskimunina Læsi, lestrarskimun í 1. og 2. bekk til þess að fylgjast með framförum þeirra grunnskóla sem hafa nýtt sér Byrjendalæsi. „Reykjavíkurborg hefur metið alla grunnskóla borgarinnar með ytra mati á undanförnum árum. Ein af niðurstöðum þess er að fjölbreyttar kennsluaðferðir og markviss samvinna nemenda og sjálfstæði í námi einkenna þá skóla sem ná hvað mestum árangri. Mikilvægt er að kennarar fái endurgjöf á störf sín og þar með hvatningu til að gera sífellt betur og auka fjölbreytni í kennsluháttum. Almenn og opin umræða um leiðir til þess að auka fjölbreytni kennsluhátta ásamt umræðu um hvernig auka má virkni nemenda og aðild þeirra að leiðum í námi og kennslu er því sérlega mikilvæg.“
Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Sjá meira