Lést stuttu eftir að hann kærði líkamsárás á Akureyri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. ágúst 2015 14:29 Árásin átti sér stað við Hjalteyrargötu á Akureyri í júlí. vísir/pjetur
Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar nú líkamsárás sem kærð var til lögreglunnar þann 12. ágúst síðastliðinn. Maðurinn sem kærði árásina lést um liðna helgi. Meint árás átti sér stað fyrir utan hús við Hjalteyrargötu á Akureyri aðfaranótt 19. júlí. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru fimm grunaðir um árásina en ekki hefur tekist að yfirheyra þá alla þar sem einhverjir eru úti á sjó eða erlendis. Skýrslur hafa einnig verið teknar af vitnum. Tveir sakborninga eru meðlimir í vélhjólaklúbbnum MC Nornir en samkvæmt umfjöllun DV um málið er klúbburinn aðeins ætlaður konum. Lögreglan telur ekki að klúbburinn tengist líkamsárásinni á neinn hátt. Rannsókn málsins er enn í gangi en eins og fyrr segir lést maðurinn sem kærði árásina um seinustu helgi. Hann hafði fyrst leitað sér læknisaðstoðar á Selfossi þremur dögum eftir árásina og kom þá í ljós að hann var rifbeinsbrotinn. Hvorki sú rannsókn né læknisrannsókn sem maðurinn gekkst undir nokkru síðar á Akureyri bentu til að maðurinn væri með alvarlega höfuðáverka. Krufning hefur farið fram og er beðið niðurstöðu hennar. Þar sem rannsókn er enn í gangi er ekki ljóst hvort og þá hvernig lát mannsins mun hafa áhrif á rannsókn á málsins. Búið var að taka skýrslu af manninum en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þó ekki óalgengt að taka þurfi skýrslur aftur af brotaþolum þegar sakborningar og vitni hafa verið yfirheyrð. Eðli málsins samkvæmt verður það þó ekki hægt í þessari rannsókn.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Sjá meira