Árásarmaður kýldi afgreiðslustúlku í bílalúgu Heimir Már Pétursson skrifar 3. október 2015 10:06 Málið er í rannsókn. Vísir/Getty
Rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi var afgreiðslustúlka kýld í andlitið þar sem hún var að afgreiða mann í gegnum lúgu á skyndibitastað í borginni. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn sem réðst á stúlkuna hafi viljað skipta seðlum í mynt og hafi afgreiðslustúlkan verið tilbúin að skipta ákveðinni upphæð sem maðurinn var ekki sáttur við. Árásarmaðurinn var farinn á brott þegar lögregla kom á vettvang og er málið í rannsókn. Þá voru afskipti höfð af ungum manni við veitingahús í Tryggvagötu um klukkan þrjú í nótt en hann er grunaður um að hafa slegið dyravörð í andlitið. Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af nokkrum ökumönnum í gærkvöldi og nótt. Upp úr klukkan sjö í gærkvöldi var tilkynnt um umferðaróhapp á Suðurlandsbraut. Lögregla segir að annar ökumaðurinn sé grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og aka sviptur ökuréttindum. Hann hafi verið vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Upp úr klukkan níu í gærkvöldi var bifreið stöðvuð á Bugðulæk. Ökumaðurinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, aka ítrekað sviptur ökuréttindum og vörslu fíkniefna. Rétt fyrir klukkan eitt í nótt handtók lögregla tvo menn íausturborginni vegna gruns um vörslu fíkniefna ofl. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Þá stöðvaði lögregla bifreið í Bergstaðastræti í nótt vegna gruns um að ökumaðurinn hafi verið ölvaður og að aka ítrekað sviptur ökuréttindum.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira