Áshildur nýr forstöðumaður Höfuðborgarstofu Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2015 13:08 Áshildur hefur frá árinu 2012 gegnt stöðu framkvæmdastjóra Markaðsstofu Kópavogs. Mynd/Reykjavík
Áshildur Bragadóttir hefur verið valin úr hópi 39 umsækjenda til að taka við stöðu forstöðumanns Höfuðborgarstofu. Áshildur tekur við stjórn Höfuðborgarstofu þann 16. september næstkomandi þegar Einar Bárðarson lætur af störfum. Hún hefur frá árinu 2012 gegnt stöðu framkvæmdastjóra Markaðsstofu Kópavogs. Í tilkynningu segir að forstöðumaður Höfuðborgarstöðu beri ábyrgð á verkefnum tengdum ferðamálum og vinnur að því að nýta sóknarfæri og styrkleika Reykjavíkur á því sviði. „Höfuðborgarstofa rekur fjölþætta upplýsingamiðlun fyrir ferðamenn og sér um framkvæmd stórra borgarhátíða ásamt samráði og ráðgjöf við skipuleggjendur annarra viðburða í borginni. Áshildur Bragadóttir er viðskiptafræðingur með MSc í Stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Frá árinu 2012 hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra Markaðsstofu Kópavogs þar sem hún hefur unnið náið með breiðum hópi haghafa og sveitarfélagsins m.a. að því að efla ferðaþjónustu og styrkja og efla innviði ýmissa atvinnusvæða í bænum. Markaðsstofa Kópavogs var nýstofnuð þegar hún var ráðin til starfa og hef Áshildur ásamt stjórn byggt félagið upp frá grunni, greint vaxtarmöguleika í rekstri og tækifæri til þróunar og úrbóta. Hún hefur einnig unnið náið með Höfuðborgarstofu og fulltrúum annarra sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu að því að koma á öflugu samstarfi í ferðaþjónustu undir merkjum ,,Reykjavík Loves“ og þekkir því vel til þeirra viðfangsefna sem framundan eru á þessum vettvangi næstu misserin. Áshildur hefur víðtæka stjórnunarreynslu bæði frá stórum og smáum fyrirtækjum, stofnunum, en hún gegndi m.a. áður störfum sem samskipta- og markaðsstjóri viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands, sérfræðingur og deildarstjóri hjá Landsbankanum, markaðsstjóri nýsköpunarfyrirtækis og nú síðast á vettvangi sveitarfélags. Hún hefur því áralanga reynslu af markaðs- og kynningarstörfum, stefnumótun og rekstri. Samhliða hefur Áshildur einnig sinnt kennslu á háskólastigi og ýmsum trúnaðar- og stjórnarstörfum. Næstu 3 - 5 árin mun starfsemi Höfuðborgarstofu taka mið af nýrri aðgerðaáætlun Ferðamálastefnu Reykjavíkur. Þar eru sett í forgang verkefni tengd innviðum, gæðum og skipulagi áfangastaðarins, móttaka gesta, samstarf og þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt er fyrirsjáanlegt að málefni miðborgarinnar munu í auknum mæli verða á ábyrgð Höfuðborgarstofu. Forstöðumaður mun því leiða framkvæmd nýrrar forgangsröðunar og þær breytingar á starfseminni sem hún kallar á. Niðurstaða ráðningarnefndar, sem í sátu Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs, Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar og Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri CP Reykjavík - og ráðgjafa Capacent, sem sá um ráðningarferilinn, var því að Áshildur Bragadóttir mæti afar vel kröfum Reykjavíkurborgar um staðgóða þekkingu á starfssviði Höfuðborgarstofu, meira en 5 ára reynslu af stjórnun og rekstri, leiðtogahæfni, frumkvæði og færni til að leiða starfsemina áfram á farsælli braut,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Þessir sóttu um stöðu forstöðumanns Höfuðborgarstofu Reykjavíkurborg hefur birt lista yfir þá sem sóttu um stöðuna. 26. ágúst 2015 16:41 Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira
Þessir sóttu um stöðu forstöðumanns Höfuðborgarstofu Reykjavíkurborg hefur birt lista yfir þá sem sóttu um stöðuna. 26. ágúst 2015 16:41