Nemendum hefur verið hótað og ógnað Viktoría Hermannsdóttir skrifar 21. janúar 2015 07:00 Hræðsla er meðal sumra nemenda vegna hóps sem hefur ógnað og hótað nemendum við skólann. Unnið er að því að leysa málið. Fréttablaðið/Vilhelm
Mikil hræðsla er meðal unglinga í Hagaskóla vegna þess að hópur unglinga, sem ýmist eru í skólanum eða ekki, hafa hótað og ógnað nemendum skólans. Ástandið hefur varað um nokkurra mánaða skeið og hafa ítrekaðar hótanir og ógnanir átt sér stað bæði á skólatíma og utan skóla. Skólayfirvöld í samstarfi við lögreglu og félagsmálayfirvöld hafa reynt að vinna að því að koma málum í lag. Í gær kom foreldri barns, sem hafði orðið fyrir ónæði frá meðlimi hópsins, í skólann á skólatíma til þess að ræða við meintan geranda. Til einhverra ryskinga kom á milli þeirra en ekki er vitað hversu alvarlegar þær voru. Lögreglumenn voru staddir í skólanum á sama tíma þar sem þeir voru að funda með skólayfirvöldum til þess að reyna finna lausnir á þeim vanda sem skapast hefur vegna hópsins.Sjá einnig:Hafragrauturinn hætt kominn í Hagaskóla „Það hafa borist tilkynningar til lögreglu um ógnanir meðal annars milli barna og ungmenna í vesturbænum, það er verið að vinna í því máli af hálfu lögreglu, félagsmálayfirvalda, barnaverndaryfirvalda, skóla og foreldra,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kristján vildi þó ekki tjá sig um meint atvik sem átti sér stað þar í gær en staðfestir að verið sé að leita lausna vegna vandans sem skapast hefur út af hópnum.Sjá einnig:Kveikt í dekkjum við Hagaskóla „Það koma tilvik öðru hverju þar sem að fáir einstaklingar geta valdið miklu uppnámi. Þá einstaklinga þarf að finna og koma til aðstoðar og það er það sem er verið að reyna gera núna,“ segir Ólafur. Talsverður uggur er vegna ástandsins og hafa umsjónarkennarar sent foreldrum tölvupóst vegna málsins þar sem kemur fram að verið sé að vinna að því að leysa vandamálið.Sjá einnig:Tossabekkir Hagaskóla á 9. áratugnum Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er meintur forsprakki hópsins kominn í annan skóla og hefur verið bannað að koma í Hagaskóla eða á skólalóðina. Hann hefur hins vegar ekki sinnt því og ítrekað vanið komur sínar þangað til þess að hrella aðrar nemendur. Með honum í hóp eru nokkrir nemendur við skólann auk þess sem í einhverjum tilfellum hafa verið með honum eldri unglingar sem voru í skólanum áður. Heimildir Fréttablaðsins herma einnig að dæmi séu um að unglingar þori ekki að vera einir á ferð af ótta við hópinn. Ekki náðist í skólastjóra Hagaskóla við vinnslu fréttarinnar.
Tengdar fréttir Hagaskóli slær í gegn Meðfylgjandi myndir tók Heiðdís Einarsdóttir baksviðs hjá nemendum Hagaskóla sem hafa slegið í gegn með söngleikinn Konungur ljónanna í leikstjórn Sigríðar Birnu Valsdóttur leiklistarkennara við skólann en tónlistarstjóri er Björn Thorarensen. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar og aukasýningarnar að sama skapi. 17. mars 2013 09:45 Hagaskóli endurheimti titilinn Liðið lagði Réttarholtsskóla í úrslitum 25-19 en síðarnefnda liðið hafði forystu að loknum hraðaspurningum. 5. júní 2014 22:40 Dagur í Lífi Söru Maríu Sara María Júlíudóttir hannar fyrir Forynju og hefur nóg fyrir stafni þessa dagana. 2. maí 2014 15:00 Hagaskóli að springa: Heilbrigðiseftirlit stöðvar matseld fyrir nemendur Samkvæmt spám Reykjavíkurborgar mun nemendum fjölga á næstu árum. "Húsnæðið ber það ekki,“ segir Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla. 25. júní 2014 13:36 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira
Hagaskóli slær í gegn Meðfylgjandi myndir tók Heiðdís Einarsdóttir baksviðs hjá nemendum Hagaskóla sem hafa slegið í gegn með söngleikinn Konungur ljónanna í leikstjórn Sigríðar Birnu Valsdóttur leiklistarkennara við skólann en tónlistarstjóri er Björn Thorarensen. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar og aukasýningarnar að sama skapi. 17. mars 2013 09:45
Hagaskóli endurheimti titilinn Liðið lagði Réttarholtsskóla í úrslitum 25-19 en síðarnefnda liðið hafði forystu að loknum hraðaspurningum. 5. júní 2014 22:40
Dagur í Lífi Söru Maríu Sara María Júlíudóttir hannar fyrir Forynju og hefur nóg fyrir stafni þessa dagana. 2. maí 2014 15:00
Hagaskóli að springa: Heilbrigðiseftirlit stöðvar matseld fyrir nemendur Samkvæmt spám Reykjavíkurborgar mun nemendum fjölga á næstu árum. "Húsnæðið ber það ekki,“ segir Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla. 25. júní 2014 13:36