Menning

Hagaskóli slær í gegn

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/Heiðdís Einarsdóttir
Meðfylgjandi myndir tók Heiðdís Einarsdóttir baksviðs hjá nemendum Hagaskóla sem hafa slegið í gegn með söngleikinn Konungur ljónanna í leikstjórn Sigríðar Birnu Valsdóttur leiklistarkennara við skólann en tónlistarstjóri er Björn Thorarensen. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar og aukasýningarnar að sama skapi.

"Við byrjuðum að vinna að þessu verkefni snemma í haust og æfingar hófust í október. Það taka yfir 100 krakkar í 8.-10. bekk þátt í sýningunni á einn eða annan hátt, en 71 taka beinan þátt í sýningunni eða 50 leikarar sem dansa, syngja og leika og svo eru 21 nemandi í hljómsveitinni. Yfir 30 nemendur hafa svo tekið þátt í leikmynd, búningum, ljósum, hljóði, förðun, hári, hönnun á leikskrá og veggspjaldi og ýmsu fleiru," segir Sigríður.

En búningarnir í sýningunni - þeir eru vægast sagt glæsilegir? "Allir búningar sýningarinnar, yfir 100 búningar eru saumaðir eða föndraðir af nemendum undir leiðsögn Gunnhildar Ólafsdóttur myndlistarkennara við skólann, auk þess sem foreldrar voru duglegir að koma og aðstoða," Sigríður.

"Handritið var unnið úr kvikmyndinni og Broadway söngleiknum og við notum nær öll lögin úr Broadway söngleiknum, ég held við sleppum tveimur – þremur lögum. Árni Friðriksson kennari við skólann þýddi handritið og söngtextana, nema þá texta sem eru í kvikmyndinni, við notum þýðingu Ólafs Hauks á þeim," segir Sigríður.

Þetta er áttundi söngleikurinn sem Sigríður Birna setur upp með nemendum skólans frá því árið 2004.

Heimasíða Hagaskóla.

Myndir/Heiðdís Einarsdóttir
Í sýningunni eru 11 stór dansatriði og það eru nemendur úr leikarahópnum sem hafa samið dansana.
Mikið af lögum í sýningunni er á afríska tungumálinu Zulu og því þurftu krakkarnir að læra að syngja lög sem voru þeim mjög framandi.
Björn Thorarensen og hljómsveitin eru hér að bíða eftir að ganga inn í sýningarsalinn rétt áður en sýningin hefst.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×