Hinn grunaði dæmdur þjófur: Þýfið úr Úr og gull ófundið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. ágúst 2015 10:39 Hinn grunaði var handtekinn 6. ágúst, yfirheyrður og leitað í húsi hans. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Vísir/Vilhelm
Maðurinn sem grunaður er um að hafa brotist inn í skartgripaverslunina Úr og Gull í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði um Verslunarmannahelgina hefur áður komist í kast við lögin fyrir brot af sama tagi. Maðurinn lét greipar sópa snemma morguns sunnudaginn 2. ágúst og telja eigendur búðarinnar að andvirði þýfisins hlaupi á milljónum. Helgi Gunnarsson, rannsóknarlögreglumaður sem stýrir rannsókninni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að þýfið hafi ekki fundist enn sem komið er. Hann staðfestir að hinn grunaði, sem sé um þrítugt, hafi áður verið dæmdur fyrir innbrot og þjófnað.Myndbandið skilaði góðum ábendingum Lögreglan birti myndband frá ferð þjófsins í Firðinum umræddan morgun. Helgi segir að góðar ábendingar hafi borist sem hafi komið lögreglu á spor hins grunaða. Þá hafi einnig spilað inn í að lögregla þekkti til mannsins. Rannsókn málsins gengur ágætlega að sögn Helga og er verið að skoða ýmsar hliðar málsins. Enginn annar hefur verið handtekinn vegna málsins. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku en ekki þótti ástæða til þess að fara fram á gæsluvarðhald yfir honum. Leitað var á heimili mannsins. Eins og fram hefur komið var öryggiskerfið tekið af Firðinum skömmu áður en þjófurinn lét til skarar skríða. Það hefur hingað til verið talið ótengt þjófnaðinum og ekkert hefur breyst í þeirri skoðun lögreglu að sögn Helga.
Tengdar fréttir Hafði með sér skart fyrir tugi milljóna Þjófur lét greipar sópa í skartgripaverslun í Firðinum í Hafnarfirði og tók allt gull, flest allt silfur og alla demanta verslunarinnar auk fjölda annarra dýrmætra gripa. 3. ágúst 2015 21:24 Öryggiskerfið var tekið af Firðinum klukkustund fyrir ránið Enginn hefur verið handtekinn vegna ránsins í skartgripaverslunina Úr og gull. Framkvæmdastjóri Fjarðarins segir augljóst að um fagþjóf sé að ræða sem hafi þekkt vel til í Firðinum. 4. ágúst 2015 11:39 Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Sjá meira
Hafði með sér skart fyrir tugi milljóna Þjófur lét greipar sópa í skartgripaverslun í Firðinum í Hafnarfirði og tók allt gull, flest allt silfur og alla demanta verslunarinnar auk fjölda annarra dýrmætra gripa. 3. ágúst 2015 21:24
Öryggiskerfið var tekið af Firðinum klukkustund fyrir ránið Enginn hefur verið handtekinn vegna ránsins í skartgripaverslunina Úr og gull. Framkvæmdastjóri Fjarðarins segir augljóst að um fagþjóf sé að ræða sem hafi þekkt vel til í Firðinum. 4. ágúst 2015 11:39