Grunur um manndráp af gáleysi: Hinn látni var farþegi í skottinu Bjarki Ármannsson skrifar 27. apríl 2015 22:17 Biskupstungnabraut lokað, kvöldið sem slysið varð. Vísir/Óli Kr.
Hæstiréttur hefur fallist á kröfu Lögreglustjórans á Suðurlandi um að ökumaður bíls sem lenti út af Biskupstungnabraut þann 9. apríl síðastliðinn með þeim afleiðingum að einn farþegi bílsins lést verði gert að sæta farbanni fram á mitt sumar. Héraðsdómur Suðurlands hafði áður hafnað kröfunni. Ökumaðurinn er af erlendu bergi brotinn en hefur búið og starfað á Íslandi í nokkra mánuði. Hann liggur undir rökstuddum grun um að hafa valdið mannsbana af gáleysi, sem getur varðar allt að sex ára fangelsisdóm. Hinn látni var 23 ára Rúmeni. Í greinargerð lögreglu kemur fram að farþegar í bílnum hafi alls verið sex en sá sem lést var farþegi í farangursgeymslu bílsins. Þrír af hinum fjórum farþegunum eru af erlendu bergi brotnir og eru þeir allir farnir úr landi.Slysið átti sér stað í grennd við Sogið.Mynd/Loftmyndir.isEkki von á álitsgerð um slysið fyrr en eftir um tvo mánuði Farþeginn í farangursgeymslunni lést af áverkum sem hann hlaut er hann kastaðist úr geymslunni og lenti undir bílnum við það að bíllinn lenti út af veginum. Ökumaðurinn hefur viðurkennt að hann vissi af manninum í farangursgeymslunni. Hann var ekki undir áhrifum áfengis þegar slysið átti sér stað en segist hafa misst stjórn á bílnum í hálku. Í greinargerð lögreglustjóra er gerð grein fyrir aðkomu sérfróðra aðila sem aðstoðað hafa við rannsóknina. Segir að þó málið sé í forgangi hjá lögreglu, sé álitsgerð þessara sérfræðinga ekki að vænta fyrr en eftir um tvo mánuði. Nær öruggt þyki að kalla þurfi ökumanninn þá aftur til skýrslutöku. Sem fyrr segir féllst Héraðsdómur Suðurlands ekki á kröfu lögreglustjórans um farbann. Segir í úrskurði að ekkert hafi fram komið í málinu sem bendi til þess að maðurinn muni koma sér undan því að mæta fyrir dóm á Íslandi, komi til þess að ákæra verði gefin út á hendur honum. Hæstiréttur taldi hins vegar skilyrðum til að banna manninum brottför af landinu fullnægt, meðal annars í ljósi þess að maðurinn eigi ekki fjölskyldu hérlendis og tímabundið starf hans sé það eina sem tengir hann við landið. Hann mun sæta farbanni til 24. júlí.
Tengdar fréttir Hinn látni var frá Rúmeníu Maðurinn sem lét lífið í bílslysi á Biskupstungnabraut undir Ingólfsfjalli í gærkvöldi var Rúmeni á þrítugsaldri. 10. apríl 2015 12:59 Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést þegar fólksbifreið lenti út af Biskupstungnabraut skammt frá Alviðru í fyrrakvöld hét Alexandru Bejinariu, 23 ára Rúmeni. 11. apríl 2015 16:04 Banaslys á Biskupstungnabraut Karlmaður lést þegar bíll með sex manns valt út af Biskupstungnabraut undir Ingólfsfjalli austanverðu um klukkan hálf níu í gærkvöld. 10. apríl 2015 08:13 Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Holtavörðuheiði lokað vegna hjólhýsis Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Holtavörðuheiði lokað vegna hjólhýsis Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
Hinn látni var frá Rúmeníu Maðurinn sem lét lífið í bílslysi á Biskupstungnabraut undir Ingólfsfjalli í gærkvöldi var Rúmeni á þrítugsaldri. 10. apríl 2015 12:59
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést þegar fólksbifreið lenti út af Biskupstungnabraut skammt frá Alviðru í fyrrakvöld hét Alexandru Bejinariu, 23 ára Rúmeni. 11. apríl 2015 16:04
Banaslys á Biskupstungnabraut Karlmaður lést þegar bíll með sex manns valt út af Biskupstungnabraut undir Ingólfsfjalli austanverðu um klukkan hálf níu í gærkvöld. 10. apríl 2015 08:13