Hælisleitanda synjað um áheyrn í gær Snærós Sindradóttir skrifar 19. september 2015 07:00 Mehdi Pedarsani mynd/aðsend „
Hann á yfir höfði sér fangelsisdóm og trúarlegar ofsóknir ef hann fer heim aftur,“ segir á síðunni Ekki fleiri brottvísanir, um Mehdi Pedarsani. Hann er íranskur ríkisborgari sem kom hingað til lands fyrir ári sem hælisleitandi. Í gær fékk Mehdi synjun frá kærunefnd útlendingamála um að málið hans yrði tekið til efnislegrar meðferðar hér á landi. Synjunin er veitt á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og verður til þess að innan tíðar verður Mehdi sendur til Noregs. Þaðan verður hann svo líklega sendur til heimalands síns. Rauði kross Íslands hefur hingað til séð um mál Mehdis. Nú þegar honum hefur verið synjað um efnislega meðferð stendur honum til boða að áfrýja málinu til dómstóla. Rauði krossinn hefur staðfest að við slíkar aðstæður sé hælisleitanda leiðbeint til lögfræðinga sem geta tekið málið að sér. Á síðunni Ekki fleiri brottvísanir stendur að Mehdi hafi tekið ákvörðun um áfrýjun máls síns. Þá hafi honum verið greint frá því að þrátt fyrir áfrýjunina megi hann eiga von á því að vera sendur úr landi hvenær sem er. Íran er íslamskt ríki með klerkastjórn. Staða mannréttinda hefur verið gagnrýnd í landinu og íranska ríkisstjórnin sökuð um pyntingar.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira