Leikskólabörnum fækkað um 20 prósent Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. september 2015 07:00 Leikskólanum Sjónarhóli verður lokað í vetur vegna fækkunar leikskólabarna í Grafavogi.
Leikskólanum Sjónarhóli í Grafarvogi verður lokað í vetur. Þar með fækkar leikskólum í hverfinu úr 11 í 10. Ástæðan er sú að leikskólabörnum í hverfinu hefur fækkað svo mikið á undanförnum árum að ekki þótti forsvaranlegt að halda leikskólanum opnum. Í dag eru 920 börn á leikskólaaldri í Grafarvogi, en fyrir tíu árum voru þau 1.164. Fækkunin nemur 21 prósenti. „Maður er auðvitað ekkert sáttur. Maður vill hafa góða leikskólann sinn áfram,“ segir Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri í samtali við Fréttablaðið. Hún segir ekki alla starfsmenn leikskólans vera komna með störf annars staðar. „En það er allt í farvegi og verið að aðstoða okkur við að finna það,“ segir hún. Hún segir ekki endanlega vera búið að ákveða hvaða dag leikskólanum verði lokað. Það sé þó ljóst að það verði gert fyrir áramót. Foreldraráð Sjónarhóls gagnrýnir að skóla- og frístundasvið skyldi ekki hafa meira samráð við foreldra í aðdraganda að breytingunum og gagnrýnir að leikskólanum sé lokað. Í bréfi sem þær Auður Aðalbjarnadóttir og Anna Björk Bjarnadóttir, fyrir hönd foreldraráðs Sjónarhóls, sendu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs segir að fara hefði mátt aðrar leiðir en að loka leikskólanum. Þar segir meðal annars að sameining Sjónarhóls og leikskólans Brekkuborgar hafi ekki verið rædd til fulls. Sameining leikskólanna yrði mun mildari aðgerð. Slík sameining gæfi börnunum möguleika á að að vera áfram saman á leikskóla og vinna áfram með því starfsfólki sem það þekkir og treystir. Vill foreldraráðið að gerð verði úttekt á starfi leikskólanna og hverjir samlegðarþættir við sameiningu þeirra gætu orðið. Þá segir í umsögn foreldraráðs að mikill aukakostnaður og umstang muni leggjast á foreldra, verði þessi tillaga samþykkt óbreytt. Aðlögun barna í leikskólum krefjist þess að foreldrar séu viðstaddir í leikskólanum í að minnsta kosti þrjá vinnudaga með barni sínu á leikskóla. Skipulagning sumarfrísdaga foreldra sé löngu lokið og fáir hafi kost á öðru en að taka sér launalaust leyfi. „Þurfi foreldrar að taka sér launalaust leyfi þessa þrjá daga er launatap sem fellur á foreldra um 14% af mánaðartekjum.“
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Stefnir Elvari fyrir að nota hljóðbút af rifrildi Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira