Leyfum á hreindýr fjölgar Jakob Bjarnar skrifar 19. janúar 2015 15:49 Þessi veiðimaður náði sínu dýri skömmu fyrir myrkur, við Snæfell. atli geir
Heimilt verður að veiða allt að 1412 dýr á árinu sem er fjölgun um 135 dýr frá fyrra ári. Umhverfis- og auðlindaráðherra var að gefa út hvernig hreindýrakvóta þessa árs verður háttað og er það að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Alls má veiða 782 kýr og 630 tarfa. Ekki gekk alltof vel að koma leyfunum út í fyrra. Fréttastofa ræddi við Jóhann G. Gunnarsson á Egilsstöðum, en hann hefur umsjá með leyfunum. „Það voru 130 leyfi sem ég úthlutaði núna eftir að menn áttu að vera búnir að klára seinni greiðsluna, og mér sýnist það að ég hafi fengið upp undir 70 af þeim í hausinn til baka. Sem sagt menn sem ég úthlutaði á biðlistana þáðu þau ekki þannig að ég verð að halda áfram að reyna að koma út þessum leyfum, sem er náttúrulega dálítið bagalegt að þurfa að standa í því þegar veiðitíminn er kominn á fullt,“ sag Jóhann þá. Í fyrra var Jóhann því kominn nokkuð djúpt niður á biðlistana áður en hann náði að koma öllum leyfunum út. Ástæðurnar fyrir því að treglegar gengur að koma leyfunum út eru margvíslegar, svo sem tíðarfar auk þess sem það er talsvert dýrt að fara austur til að veiða hreindýr; leyfin kosta ríflega hundrað þúsund krónur en svo fellur til ýmis aukakostnaður svo sem olía á bíla, gisting, leiðsögumaður, skotpróf sem þarf að þreyja, verkun á dýri og svo framvegis. Líklega er kostnaðurinn, þegar allt er talið, um og yfir þrjú hundruð þúsund krónur. En, sjálfsagt eru aðstæður manna mismunandi, til dæmis eftir því hvaðan þeir koma til veiða. Í tilkynningu frá ráðherra kemur fram að veiðitími tarfa sé frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur „Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.“
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira