Kvöddu fjölskyldumeðlim í hinsta sinn sem bíður aftöku Birgir Olgeirsson skrifar 28. apríl 2015 15:27 Fjölskylda Myuaran Sukumaran eftir að hafa kvatt hann í hinsta sinn. Vísir/EPA
Hópur fanga sem bíður þess að vera tekinn af lífi fyrir eiturlyfjasmygl í Indónesíu fékk að kveðja fjölskyldu sína í dag. Á meðal þeirra eru Ástralarnir Andrew Chan og Myuaran Sukumaran en fjölskyldur þeirra voru í miklu uppnámi þegar kom að kveðjustundinni. Systir Sukumarans féll í yfirlið og þurfti að bera hana í burtu. Búist er við því að Chan, Sukumaran og sjö aðrir verði leiddir fyrir aftökusveit í dag. Franskur borgari hefur áfrýjað sínum dómi og bíður eftir ákvörðun yfirvalda um hvort mál hans fari aftur fyrir dóm. Indónesía tekur einna harðast á brotum gegn eiturlyfjalöggjöf en yfirvöld þar í landi hafa réttlætt refsihörkuna með því að benda á að 33 láti lífið á hverjum degi í Indónesíu vegna eiturlyfjaneyslu.Ástralarnir Andrew Chan og Myuaran SukumaranVísir/EPAÁstralskir fjölmiðlar hafa greint frá því að fjölskyldur Chan og Sukumaran fengu um fimm klukkustundir til að kveðja þá. Þá hefur þeim verið meinað um að velja sér andlega ráðgjafa fyrir aftökuna. Tóku yfirvöld í Indónesíu þá ákvörðun að fá kristna ráðgjafa fyrir mennina tvo. Bræður Chan og Sukuman hafa beðið yfirvöld um að hlífa þeim. „Í dag sá ég eitthvað sem engin fjölskylda á að þurfa að ganga í gegnum. Að þurfa að kveðja hann í síðasta skiptið, það er pynting. Engin fjölskylda ætti að þurfa að ganga í gegnum það,“ sagði Michael Chan. „Við höfðum svo margt ræða. Við töluðum um dauðarefsinguna og hann veit að hún er sóun. Ég biðla til forseta Indónesíu að sýna miskun, ekki láta móður mína og systur þurfa að bera bróður minn til grafar,“ sagði Chintu Sukumaran. Níu fangar fengu það staðfest formlega á laugardag að þeir yrðu teknir af lífi. Samkvæmt lögum í Indónesíu þarf að tilkynna föngum það með þriggja daga fyrir vara að taka eigi þá af lífi. Chan og Sukumaran, ásamt sjö öðrum Áströlum, voru handteknir í Balí árið 2005 fyrir að reyna að smygla meira en 8,2 kílóum af heróíni frá Indónesíu til Ástralíu. Chan og Sukumaran voru sagðir höfuðpaurar hópsins og dæmdir til dauða. Hinir sjö eru nú að afplána lífstíðar eða 20 ára fangelsisvist.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Útlendingum fækkað það sem af er ári Innlent Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Erlent Fleiri fréttir Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Sjá meira