Beingreiðslur til bænda án eftirlits um fjölda áa Sveinn Arnarsson skrifar 6. október 2015 07:00 Miklu fé er varið árlega í íslenska sauðfjárrækt. 2.5 milljarðar króna renna til bænda fyrir það eitt að halda sauðfé árlega. vísir/valli
Sauðfjárbændur þurfa einungis að hafa 70 prósent sauðfjár á vetrarfóðrum til að fá fullar beingreiðslur fyrir þau ærgildi sem þeir eiga. Ekkert eftirlit er með því hvort bændur gefi upp rétta tölu sauðfjár hjá sér. Sauðfjárræktandi með 500 ærgildi þarf því aðeins að hafa 350 kindur á vetrarfóðrum til að fá að fullu greitt fyrir þau ærgildi sem hann á. Ríkið greiðir sauðfjárbændum um 2,5 milljarða árlega fyrir að halda sauðfé.Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðarráðherraSigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra undirritaði reglugerð þess efnis í vikunni og er hlutfallið óbreytt á milli ára. Hann segir hlutfallið hafa haldist óbreytt milli ára. „Ástæða þess að engin breyting er núna á ásetningarhlutfallinu er að það er ekki skortur á kjöti. Við hækkuðum hlutfallið fyrir nokkrum árum þegar leit út fyrir skort á lambakjöti. Hins vegar er það ekki raunin í ár og því ákváðum við að halda þessu óbreyttu,“ segir Sigurður Ingi. Samkvæmt lögum um búfjárhald eiga allir sauðfjárbændur að vera búnir að senda skýrslu um fjölda sauðfjár á fæti hjá sér fyrir 20. nóvember. Matvælastofnun er skylt að fara í eftirlitsferðir til þeirra sem ekki skila inn skýrslu til að telja sauðfé á kostnað bænda.Sverrir Sverrisson, sérfræðingur hjá MatvælastofnunMatvælastofnun er jafnframt heimilt að fara í skoðun til sauðfjárbænda til að sannreyna upplýsingagjöf þeirra. Matvælastofnun hefur aldrei frá því ný lög um búfjárhald tóku gildi árið 2013 farið í þessar eftirlitsferðir og treyst bændum fyrir þessu. Milljarðar króna renna til sauðfjárbænda árlega í formi beingreiðslna án þess að eftirlit sé með því hvort bændur gefi upp rétta tölu sauðfjár hjá sér. Sverrir Þ. Sverrisson, sérfræðingur hjá Matvælastofnun, segir stofnunina fara í fjölda eftirlitsferða á hverju ári. „Hins vegar höfum við ekki farið í ferðir til þeirra sem eru búnir að skila inn búfjárskýrslu til að sannreyna upplýsingar þeirra. Við höfum meira verið í því að eltast við bændur sem ekki skila inn búfjárskýrslum,“ segir Sverrir. „Ef grunur leikur á að menn séu ekki að fara rétt með í búfjárskýrslum þá skoðum við vissulega slík mál.“
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira