Nálgunarbann fellt úr gildi: Konan ítrekað leitað til lögreglu vegna ofbeldis og ógnandi hegðunar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. mars 2015 19:28 Hæstiréttur felldi úrskurð héraðsdóms úr gildi. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður skuli sæta 6 mánaða nálgunarbanni. Með úrskurðinum var honum bannað að koma á eða í námunda við heimili konu, en þau hafa verið sundur og saman til margra ára, að því er segir í dómnum, og er haft eftir konunni. Þá var jafnframt lagt bann við því að maðurinn veitti konunni eftirför, að hann nálgaðist hana á almannafæri eð setti sig í samband við hana með öðrum hætti. Í greinargerð lögreglustjóra sem lagð var fram í héraðsdómi kemur fram að undanfarna mánuði hafi konan ítrekað þurft að leita eftir aðstoð lögreglu vegna ofbeldis og ógnandi hegðunar karlmannsins. Þá sé einnig að finna fjölda mála frá árunum 2012 og 2013 þar sem konan hafi leitað aðstoðar vegna ógnandi hegðunar og ofbeldis af hálfu mannsins. Konan fór fram á nálgunarbann þann 2. mars síðastliðinn en lögreglan mat það sem svo að ekki væri tilefni til nálgunarbanns þar sem vægari úrræði hafi ekki verið reynd. Það var þó brýnt fyrir manninum að eitt tilvik í viðbót yrði til þess að ákvörðun lögreglustjórans yrði endurskoðuð. Það var svo gert þann 17. mars síðastliðinn þegar maðurinn var úrskurðaður í nálgunarbann. Sex dögum síðar staðfesti héraðsdómur þann úrskurð en sama dag var bókað í þinghaldi eftir réttargæslumanni konunnar að hún hefði fallið frá kröfu um nálgunarbann og vildi að maðurinn „kæmi til sín“. Hæstiréttur felldi því úrskurðinn úr gildi og sætir maðurinn ekki nálgunarbanni. Dóminn má sjá hér.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Sjá meira