ÁTVR og Eva hjá BUGL fá samgönguviðurkenningu Atli Ísleifsson skrifar 17. september 2015 16:49 Þorvaldur Daníelsson frá Reiðhjólabændum, Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Eva Ólafsdóttir frá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). Mynd/Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertson borgarstjóri afhenti í dag samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) fékk viðurkenningu fyrir að stuðla að vistvænum ferðamáta starfsmanna og Eva Ólafsdóttir hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) fyrir verkefni sem snýr að aukinni hreyfingu sem lið í meðferð unglingahóps. Í tilkynningu frá borginni segir að Reykjavíkurborg veiti árlega samgönguviðurkenningu í tengslum við evrópska samgönguviku. Er hún hugsuð sem hvati til að innleiða vistvæna samgöngumáta á fjölbreyttum vinnustöðum í borginni, veita fyrirtækjum og stofnunum viðurkenningu fyrir það sem vel er gert og hvetja til frekari dáða. „Vistvænar ferðavenjur hjá ÁTVRÍ mati dómnefndar fyrir samgönguviðurkenningu segir að ÁTVR hafi sýnt góðan árangur við að breyta ferðavenjum starfsmanna í átt að vistvænni samgöngumátum. Á vinnustaðnum sé starfsfólk hvatt til heilsueflingar með líkamsræktarstyrkjum og samgöngusamningum. Ferðamáti starfsmanna er mældur bæði á sumrin og veturna. Veturinn 2014 notuðu 44% starfsmanna einkabíl í ferðir til og frá vinnu og er það mikil lækkun frá sumrinu 2012 þegar 60% starfsmanna komu til vinnu á bíl. Á sumrin er hlutfall þeirra sem nota einkabíl enn lægra eða um 33%. Til samanburðar kemur fram í ferðavenjukönnun frá 2014 að 75% Reykvíkinga nota einkabíl í ferðir á milli staða. Losun gróðurhúsalofttegunda hefur minnkað verulega hjá starfsfólki ÁTVR eða úr 140 tonnum árið 2012 í 99 tonn árið 2014. Heilsufarsmælingar hafa verið gerðar reglubundið hjá ÁTVR og mælist heilsufar starfsmanna mun betra en meðaltal á landsvísu. Sem dæmi má nefna að hlutfall þeirra sem eru í kjörþyngd hefur aukist úr 40% í 49% á milli áranna 2014 og 2015. Til samanburðar er landsmeðaltalið 39%.Aukin hreyfing hjá BUGLEva Ólafsdóttir er sá einstaklingur sem hlýtur samgönguverðlaun Reykjavíkurborgar 2015. Hún starfar sem félagsráðgjafi á legudeild Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL). Þar var ákveðið að setja á fót prógramm fyrir unglingana sem meðal annars fæli í sér meiri hreyfingu. Þá var farið að skoða hjólin sem voru í misgóðu ásigkomulagi og leitaði ráðgjafi á deildinni til Evu Ólafsdóttur félagsráðgjafa þar sem hún hafði tengingu við Reiðhjólabændur. Hún sendi beiðni á bændurna sem svöruðu að bragði og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Sumir komu með varahluti og bjöllur. BUGL átti fimm hjól og fékk deildin eitt hjól til viðbótar gefins frá einum reiðhjólabónda. Hjólin verða notuð sem hluti af meðferð unglingahóps á legudeild BUGL. Eva sá um að taka á móti sjálfboðaliðum og halda utan um verkefnið, ásamt ráðgjafa á deildinni, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Nánar má lesa um afhendinguna í frétt á vef Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fleiri fréttir María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Sjá meira