Mikið um lús í leik- og grunnskólum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. september 2015 14:39 "Það er búið að vera mikið um lús undanfarin tvö ár, en við vitum ekki hvað það er sem veldur því,“ segir Ása. vísir/stefán
Töluvert hefur verið um lús í leik- og grunnskólum að undanförnu. Fjöldi smita liggur þó ekki fyrir að svo stöddu, en unnið er að því að taka saman fjöldann. Ása Atladóttir sóttvarna-hjúkrunarfræðingur segir að eina ráðið til að losna við lúsina sé að kemba hárið vandlega. Helst þyrftu foreldrar að kemba börnum sínum vikulega. „Það er búið að vera mikið um lús undanfarin tvö ár, en við vitum ekki hvað það er sem veldur því. En eina ráðið er að kemba barninu vel, og best væri ef foreldrar hefðu það sem reglu að kemba barninu sínu, helst einu sinni í viku og koma þessu inn í rútínuna. Það er langöruggast því þrátt fyrir að lúsin sé farin úr hárinu þá er oft mikið af niti eftir,“ segir Ása.Ása hvetur foreldra til að kemba börnunum einu sinni í viku.vísir/vilhelmMikilvægt að leita sér ráðlegginga Hún segir að mikið sé um lúsalyf á markaði sem ekki virki sem skyldi. Því sé mikilvægt að fólk skoði innihaldslýsingar vel. „Það sem hefur breyst á undanförnum árum er að það er mikið af nýjum lyfjum í lyfjabúðum. Áður voru þau byggð á skordýraeitri en núna er meira um náttúruefni, sem því miður eru ekki alltaf mjög góð. Þannig að neytendur þurfa að vera svolítið vakandi,“ segir Ása og hvetur fólk til að leita sér ráðlegginga. Lúsalyfin dugi þó ekki ein og sér. Lúsin fer alla jafna á stjá á þessum tíma árs, eða þegar skólarnir hefjast. Foreldrar hafa margir hverjir fengið póst þar sem þeir eru minntir á mikilvægi þess að kemba börnunum, en leiðbeiningar þess efnis má nálgast á vef Landlæknis. Allir geta smitast en lúsin er algengust hjá þriggja til tólf ára börnum.
Mest lesið Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Innlent Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira