Verðlaunaði þættina Lífríkið í sjónum við Ísland Atli Ísleifsson skrifar 16. september 2015 15:40 Sigrún Magnúsdóttir ræðir við verðlaunahafa. Mynd/Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, veitti í dag, þáttaseríunni „Lífríkið í sjónum við Ísland“ eftir þá Erlend Bogason og Pétur Halldórsson fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í tilefni af Degi íslenskrar náttúru. Við sama tækifæri veitti hún Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti en hana hlutu annars vegar hjónin Björn Halldórsson og Elisabeth Hauge á Valþjófsstöðum í Öxarfirði og hins vegar Völundur Jóhannesson á Egilsstöðum. „Tilnefndir til fjölmiðlaverðlaunanna voru: Hallgrímur Indriðason, fréttamaður á RÚV, sem gerði deiluefni um virkjanakosti í Þjórsá góð skil í sjónvarpsfréttum 17. maí sl. Iceland Review, sem sagði frá eldgosinu í Holuhrauni í fjölda vandaðra og upplýsandi greina og með ljósmyndum sem komu hrikafegurð eldsumbrotanna og áhrifum þeirra á viðkvæma náttúru vel til skila.Þáttaröðin „Lífríkið í sjónum við Ísland“, sem er röð stuttra þátta ætluð til vekja athygli á fjölbreyttu náttúrulífi neðansjávar. Í rökstuðningi dómnefndar fjölmiðlaverðlauna segir að þættirnir „Lífríkið í sjónum við Ísland“ séu dæmi um metnaðarfulla þáttagerð þar sem kastljósinu sé beint að heimi undir yfirborði sjávar sem flestum er hulinn. Myndefnið sé einstakt og handritið vel unnið og samvinna höfunda hafi skilað frábærum árangri sem eftir sé tekið og hafi borið hróður þeirra langt út fyrir landsteinana. Verkefnið sé „bæði skemmtilegt og fróðlegt og hefur meðal annars sérstöðu að því leyti að það er afrakstur framtaks sem var unnið umfram skyldu, af metnaði og áhuga og aðdáunarverðri seiglu.“ Í rökstuðningi ráðherra vegna Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti kemur m.a. fram að þau Björn og Elisabeth á Valþjófsstöðum hljóti viðurkenninguna fyrir eljusemi, kraft og áhuga í landgræðslu og skógrækt við erfið ræktarskilyrði á svæði sem stendur fyrir opnu norðurhafi. Uppgræðsluverkefni þeirra nái frá fjöru til fjalls en að auki sé sjálfbærni leiðarljós í öllum búskap þeirra, sem endurspeglist m.a. í eigin raforkuframleiðslu. Völundur hljóti viðurkenninguna fyrir einstakt ræktunarstarf á hálendi Íslands í 640 metra hæð. M.a. hafi honum tekist að fá birki til að þrífast auk um 200 tegunda á svæði sem áður var talið ómögulegt til ræktunar. Þá hafi Völundur barist fyrir vernd hálendisins og sýnt framsýni í uppbyggingu skála og salernisaðstöðu á fjölförnum leiðum á hálendinu. Hann nýti sér einnig sjálfbæra orkugjafa og hafi með þrautseigju breytt hugmyndum um hvað sé mögulegt í ræktun á hálendi Íslands,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.Mynd/Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Sjá meira