Formaður borgarráðs segir mistök að Sveinbjörg Birna fékk enga afmælisköku Birgir Olgeirsson skrifar 16. september 2015 16:27 S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs, og Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina. Vísir „
Þetta voru bara mistök,“ segir S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs, í samtali við Vísi um afmæliskökumálið í borgarráði Reykjavíkur. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í borginni, greindi frá því fyrir helgi á Facebook-síðu sinni að borgarráð Reykjavíkur kaupi afmæliskökur fyrir borgarráðsmenn þegar þeir eiga afmæli á fundardegi borgarráðs, nema fyrir einn.Borgarráð Reykjavíkur kaupir afmæliskökur fyrir borgarráðsmenn þegar þeir eiga afmæli á fundardegi borgarráðs.... Nema fyrir einn.Posted by Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir on Friday, September 11, 2015Þetta sagði Sveinbjörg Birna um leið og hún deildi auglýsingu Á allra vörum, sem er átak gegn einelti, þar sem ungur drengur bíður eftir afmælisgestum sem aldrei koma. Stundin ræðir við Sveinbjörgu Birnu um málið og uppljóstrar hún að þessi eini borgarráðsmaður er hún sjálf. Sveinbjörg segist hafa átt afmæli í janúar síðastliðnum, sama dag og borgarráðsfundur var haldinn, en ekki var boðið upp á köku af því tilefni. Hún segir borgarráð hafa boðið upp á köku í tilefni af afmæli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í júní í fyrra og þegar Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, átti afmæli í júní síðastliðnum þegar borgarráðsfundur var haldinn.Engin hefð S. Björn Blöndal segir enga hefð fyrir því að bjóða upp á köku þegar afmælisdag borgarráðsmanna ber upp sama dag og fundur borgarráðs er haldinn. „Það er engin hefð fyrir þessu. Síðan ég varð formaður borgarráðs þá hefur einu sinni verið keypt afmæliskaka, þegar Júlíus Vífill Ingvarsson átti afmæli. Ég rak augun í það á Facebook að hann ætti afmæli. Það var ágætis tækifæri til að vera með eina köku. En það er engin hefð fyrir þessu,“ segir Björn.Ætlar að koma sjálf með köku „Mér þykir bara leiðinlegt ef Sveinbjörgu hefur sárnað þetta, það var ekki meiningin, ég reyni að vera vakandi fyrir hennar afmælisdegi næst, kem jafnvel með heimabakaða köku.“ Í samtali við Stundina segist Sveinbjörg ekki líta á sig sem þolanda eineltis og ætlar sjálf að mæta með köku á fund borgarráðs næst þegar hún á afmæli
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira