Engar tollalækkanir á makríl frá ESB Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 16. september 2015 20:34
Fundir með ráðamönnum ESB hafa leitt í ljós að tollaívilnanir á makríl innan ESB verða ekki að veruleika. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segir að miðað við fyrstu viðbrögð sé lítil eða engin von um tollalækkanir. Ný skýrsla Byggðastofnunnar leiðir í ljós að tekjutap sjómanna og landverkafólks vegna viðskiptabanns Rússa getur verið á bilinu frá 990 milljónum upp í tvo og hálfan milljarð króna samtals á ári, miðað við óbreytt ástand á mörkuðum. Sigurður Ingi Jóhannsson segir tekjutapið vissulega alvarleg tíðindi þótt verstu spár frá því um miðjan ágúst virðist ekki ætla að ganga eftir. Hann segir að þetta sé vissulega spá og það þurfi að fylgja málinu eftir. Menn séu að leita að nýjum mörkuðum og vonandi finnist þeir.Einstaklingar og sveitarfélög tapa Viðskiptabannið kemur verst við tíu byggðarlög á Íslandi - Þórshöfn, Raufarhöfn, Vopnafjörð, Neskaupstað, Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð, Höfn, Vestmannaeyjar, Snæfellsbæ og Garð. Á móti telur stofnunin að bannið hafi lítil eða engin áhrif á 23 byggðarlög, þar á meðal Reykjavík, Hafnarfjörð og Akureyri. Talið er að tekjutap hvers landverkamanns geti orðið á bilinu 860 til 1870 þúsund. Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir að tekjutapið verði um átján til fjörutíu prósent í landvinnslu en þótt skýrslan boði að störfum í bræðslu fjölgi um 200, muni það aðallega nýtast körlum. Þá er tekjutap sveitarsjóða áætlað á bilinu 143 til 364 milljónir króna vegna lægri útsvarstekna og tekjutap vegna lægri aflagjalda er áætlað allt að 43 milljónum. Drífa bendir á að það sé slæmt þegar tekjur séu að dragast saman hjá einstaklingunum og þeir þurfi enn fremur en áður að reiða sig á þjónustu sveitarfélaga.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Sjá meira