Ungbörn eiga ekki að sofa á maganum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 19. mars 2015 10:30 Börn á aldrinum tveggja til fjögurra mánaða geta ekki snúið andlitinu frá dýnunni, að sögn norsks læknis.
Norski barnalæknirinn Trond Markestad varaði árið 1989 foreldra og fagfólk við því að láta ungbörn sofa á maganum. Ári seinna hafði tilfellum vöggudauða fækkað um helming en þau höfðu verið 144. Læknirinn fékk á dögunum virt verðlaun fyrir vísindastörf sín, þar á meðal rannsóknir á skyndidauða ungbarna. Miðað við fólksfjölda var Noregur meðal þeirra landa þar sem tilfellin voru flest á níunda áratug síðustu aldar. Á vef norska ríkisútvarpsins er haft eftir Markestad að rannsóknir á dauðsföllum tuttugu barna hefðu leitt í ljós að öll nema eitt hefðu legið á maganum með andlitið ofan í dýnuna eða kodda. Frekari rannsóknir leiddu í ljós að vöggudauði hafði aukist til muna á þeim svæðum þar sem hætt var að láta börnin liggja á hliðinni og þau lögð á magann í staðinn. Læknirinn segir að mönnum hafi brugðið við að komast að því hversu hjálparvana ungbörn á aldrinum tveggja til fjögurra mánaða eru þegar þau liggja á maganum. Þau geti ekki snúið andlitinu frá dýnunni. Haft er eftir Torleiv Rognum, prófessor í réttarlæknisfræði, að auk legu á maganum auki of hátt hitastig og reykingar hættuna á vöggudauða. Hann hefur stýrt hópi vísindamanna sem rannsakað hafa vöggudauða frá níunda áratug síðustu aldar. Að sögn Rognum hefur orsökin í sumum tilfellum verið truflanir á efnaskiptum eða hjartslætti. Leitinni að áhættu vegna erfðaþátta er haldið áfram. Nú eru tilfelli vöggudauða í Noregi um fimmtán á ári.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Sjá meira