Dregur úr fylgi Sannra Finna Atli Ísleifsson skrifar 8. október 2015 11:58 Timo Soini, formaður Sannra Finna, gegnir embætti utanríkisráðherra landsins. Vísir/AFP
Ný skoðanakönnun sýnir að mikið hefur dregið úr fylgi hægriflokksins Sannra Finna í Finnlandi.Yle greinir frá því að flokkurinn mælist nú fimmti stærsti flokkur landsins, með 10,7 prósent fylgi. Í síðustu könnun mældist flokkurinn með 15 prósent fylgi. Sannir Finnar mynda ríkisstjórn með Miðflokknum og Þjóðarbandalaginu og gegnir Timo Soini, formaður Sannra Finna, embætti utanríkisráðherra. Ríkisstjórnin hefur þurft að skera mikið niður í ríkisútgjöldum frá því að hún tók við völdum eftir þingkosningarnar í vor.Sjá einnig: Hver er þessi næsti forsætisráðherra Finna?Miðflokkur Juha Sipilä forsætisráðherra mælist stærstur með 21,7 prósent fylgi. Jafnaðarflokkurinn mælist með 18,3 prósent fylgi, Þjóðarbandalagið með 18 prósent, Græningjar með 12,7 prósent, Vinstriflokkurinn með 8,3 prósent, Sænski þjóðarflokkurinn með 4,8 prósent og Kristilegir demókratar með 4 prósent fylgi. Finnar hafa það sem af er ári tekið á móti nærri 20 þúsund hælisleitendum og reiknar innanríkisráðuneyti landsins með að þeir verði alls 50 þúsund fyrir árslok. Móttaka hælisleitenda gengur þvert gegn stefnu Sannra Finna í innflytjendamálum.
Mest lesið Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Innlent Ekki hættur í Samfylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Framsókn Innlent Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Erlent Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Innlent Fleiri fréttir Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Sjá meira