Innlent

Persónuvernd vill gögn

sveinn arnarsson skrifar
Ráðhús Hafnarfjarðar. Persónuvernd hefur kallað eftir frekari gögnum frá Hafnarfjarðarbæ vegna rannsóknar bæjarins á símtölum starfsmanna. Upphaf málsins er rakið til fundar í ráðhúsi bæjarins laugardaginn 15. nóvember.
Ráðhús Hafnarfjarðar. Persónuvernd hefur kallað eftir frekari gögnum frá Hafnarfjarðarbæ vegna rannsóknar bæjarins á símtölum starfsmanna. Upphaf málsins er rakið til fundar í ráðhúsi bæjarins laugardaginn 15. nóvember.
Persónuvernd hefur sent Hafnarfjarðarkaupstað bréf þar sem farið er fram á að fá frumgögn og ítarlegri svör varðandi skoðun bæjarins á símtölum bæjarstarfsmanna. Þrír bæjarfulltrúar í minnihluta bæjarstjórnar kærðu meinta skoðun símtalaskráa bæjarins til Persónuverndar þann 17. febrúar síðastliðinn.

Rannsókn Hafnarfjarðarbæjar á símtalaskrám bæjarins varðar fund sem haldinn var laugardaginn 15. nóvember á síðasta ári í ráðhúsi Hafnarfjarðar. Á þann fund var boðaður starfsmaður Hafnarfjarðarhafnar. Hann gat eftir fundinn ekki greint frá því hver hefði boðað hann á fundinn. Heimildir Fréttablaðsins herma að Garðar Jónsson, framkvæmdastjóri R3 ráðgjafar, hafi setið umræddan fund. Bæjarstjóri hefur þrálátlega hafnað því og segist sjálfur hafa verið í húsinu umræddan laugardag.

Guðrún Á. Guðmundsdóttir
Þann 4. mars bárust Persónuvernd útskýringar Hafnarfjarðarbæjar í greinargerð sem skrifuð var af Andra Árnasyni lögmanni. Þar kemur fram að Hafnarfjarðarbær hafi ekki skoðað símtalaskrár kjörinna bæjarfulltrúa en vegna mistaka hafi símanúmer Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, bæjarfulltrúa VG í Hafnarfirði, verið skoðað. Ástæða Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir því að númer hennar hafi verið skoðað er sögð vera mistök í bókhaldi þar sem hún hafi eitt sinn verið bæjarstjóri og því hafi númerið hennar verið að fullu greitt af Hafnarfjarðarbæ.

Sjá einnig: Könnuðu hverja kjörnir fulltrúar töluðu við í síma

„Þetta sýnir að við höfðum fulla ástæðu til að trúa bæjarstjóra þegar hann sagðist hafa skoðað síma okkar. Það sem mér finnst umhugsunarverðast er hvað hafi réttlætt þessa skoðun bæjaryfirvalda. Ég hef ekki farið lengra með málið og mun bíða eftir ákvörðun Persónuverndar. Síðan mun ég skoða málið frekar,“ segir Guðrún Ágústa.

Haraldur L. Haraldsson
Persónuvernd kallar eftir ítarlegri svörum Hafnarfjarðarkaupstaðar. Í bréfi sem Persónuvernd sendi bæjarstjóra þann 26. mars er beðið um afrit af þeim lista sem Vodafone lét Hafnarfjarðarbæ í té. Að auki vill Persónuvernd fá staðfestingu á hvort Hafnarfjarðarbæ hafi ekki borist yfirlit yfir hringd símtöl úr farsímum starfsmanna. Einnig er spurt hvernig Hafnarfjarðarbær hafi fullnægt skyldu sinni um að láta starfsmenn vita um vinnslu persónuupplýsinga.

Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri neitaði að tjá sig um málið við Fréttablaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×