Persónuvernd vill gögn sveinn arnarsson skrifar 17. apríl 2015 07:00 Ráðhús Hafnarfjarðar. Persónuvernd hefur kallað eftir frekari gögnum frá Hafnarfjarðarbæ vegna rannsóknar bæjarins á símtölum starfsmanna. Upphaf málsins er rakið til fundar í ráðhúsi bæjarins laugardaginn 15. nóvember.
Persónuvernd hefur sent Hafnarfjarðarkaupstað bréf þar sem farið er fram á að fá frumgögn og ítarlegri svör varðandi skoðun bæjarins á símtölum bæjarstarfsmanna. Þrír bæjarfulltrúar í minnihluta bæjarstjórnar kærðu meinta skoðun símtalaskráa bæjarins til Persónuverndar þann 17. febrúar síðastliðinn. Rannsókn Hafnarfjarðarbæjar á símtalaskrám bæjarins varðar fund sem haldinn var laugardaginn 15. nóvember á síðasta ári í ráðhúsi Hafnarfjarðar. Á þann fund var boðaður starfsmaður Hafnarfjarðarhafnar. Hann gat eftir fundinn ekki greint frá því hver hefði boðað hann á fundinn. Heimildir Fréttablaðsins herma að Garðar Jónsson, framkvæmdastjóri R3 ráðgjafar, hafi setið umræddan fund. Bæjarstjóri hefur þrálátlega hafnað því og segist sjálfur hafa verið í húsinu umræddan laugardag.Guðrún Á. GuðmundsdóttirÞann 4. mars bárust Persónuvernd útskýringar Hafnarfjarðarbæjar í greinargerð sem skrifuð var af Andra Árnasyni lögmanni. Þar kemur fram að Hafnarfjarðarbær hafi ekki skoðað símtalaskrár kjörinna bæjarfulltrúa en vegna mistaka hafi símanúmer Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, bæjarfulltrúa VG í Hafnarfirði, verið skoðað. Ástæða Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir því að númer hennar hafi verið skoðað er sögð vera mistök í bókhaldi þar sem hún hafi eitt sinn verið bæjarstjóri og því hafi númerið hennar verið að fullu greitt af Hafnarfjarðarbæ.Sjá einnig: Könnuðu hverja kjörnir fulltrúar töluðu við í síma „Þetta sýnir að við höfðum fulla ástæðu til að trúa bæjarstjóra þegar hann sagðist hafa skoðað síma okkar. Það sem mér finnst umhugsunarverðast er hvað hafi réttlætt þessa skoðun bæjaryfirvalda. Ég hef ekki farið lengra með málið og mun bíða eftir ákvörðun Persónuverndar. Síðan mun ég skoða málið frekar,“ segir Guðrún Ágústa.Haraldur L. HaraldssonPersónuvernd kallar eftir ítarlegri svörum Hafnarfjarðarkaupstaðar. Í bréfi sem Persónuvernd sendi bæjarstjóra þann 26. mars er beðið um afrit af þeim lista sem Vodafone lét Hafnarfjarðarbæ í té. Að auki vill Persónuvernd fá staðfestingu á hvort Hafnarfjarðarbæ hafi ekki borist yfirlit yfir hringd símtöl úr farsímum starfsmanna. Einnig er spurt hvernig Hafnarfjarðarbær hafi fullnægt skyldu sinni um að láta starfsmenn vita um vinnslu persónuupplýsinga. Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri neitaði að tjá sig um málið við Fréttablaðið.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn Sjá meira