Kjaraviðræðum VR við SA vísað til ríkissáttasemjara Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 17. apríl 2015 09:54 Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, (t.h) segir trúnaðarbrest hafa orðið milli verkalýðshreyfingar og stjórnvalda. Vísir/Anton Brink
Kjaraviðræðum VR við Samtök atvinnulífsins verður vísað til ríkissáttasemjara. Þetta var einróma niðurstaða trúnaðarráðs VR en haldinn var fjölmennur fundur í gærkvöldi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem stafar frá formanni VR, Ólafíu B. Rafnsdóttur. Að óbreyttu verður kjaradeilunni vísað til ríkissáttasemjara í dag. „Á hinum almenna vinnumarkaði blasa verkfallsaðgerðir við,“ segir í fréttatilkynningunni. „Kröfugerð VR miðar að því að hækka lægstu launin myndarlega. Þar liggur okkar áhersla. Á fundi trúnaðarráðs í gærkvöldi var hugur í fólki og mikil samstaða. Á þeim grunni höldum við áfram.“ Í tilkynningunni segir jafnframt: „Við höfum reynt síðustu vikur að koma hreyfingu á viðræður en þær tilraunir hafa skilað litlum árangri. Það er því okkar mat að skynsamlegast sé að vísa deilunni til sáttasemjara. Vonandi mun aðkoma hans leiða til þess að viðræður komist á meira skrið.“Trúnaðarbrestur milli verkalýðshreyfingar og stjórnvalda VR og Landssamband verzlunarmanna lögðu fram kröfugerð sína í febrúar á þessu ári en kjarasamningar runnu út fyrir sjö vikum. Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR telur viðræðurnar hafa gengið mjög hægt og bendir á að launaliðir kjarasamningsins hafi ekkert verið ræddir, þar skilji enn mikið á milli. Tilkynningin er harðorð í garð stjórnvalda en þar er vísað í kjarasamninginn sem VR skrifaði undir í lok árs 2013 með það að markmiði að auka kaupmátt. „Sá trúnaðarbrestur sem varð milli verkalýðshreyfingarinnar og stjórnvalda skömmu eftir undirritun þess samnings er alvarlegri en stjórnvöld virðast gera sér grein fyrir,“ skrifar Ólafía. „Ég hef ítrekað talað fyrir mikilvægi þríhliða samstarfs á vinnumarkaði en þegar traustið er farið, reynist það þrautin þyngri. Stjórnvöld verða að ávinna sér traustið aftur, yfirlýsingar um góðan vilja duga ekki lengur.“ Ólafía segir lægstu laun enn skammarlega lág, þau dugi ekki fyrir lífsnauðsynjum og að krafa VR sé að dagvinna verði að duga fyrir framfærslu. Þrátt fyrir að þetta sé staðreynd segi forystumenn stjórvalda kaupmátt aldrei hafa verið meiri og „lýsa því yfir að allt sé hér í blóma,“ að því er segir í fréttatilkynningunni. VR hefur skipað í verkfallsnefnd félagsins en hún er skipuð fulltrúum LÍV. Verkefni hennar er að skipuleggja aðkomu VR og annarra aðildarfélaga LÍV að verkfallsaðgerðum á almennum vinnumarkaði ef að sú verður niðurstaðan að lokum.
Tengdar fréttir Dæmi um að afgreiðslufólk sé slegið utan undir í jólaösinni „Orðbragðið sem við þurfum að sitja undir er ólíðandi. Maður verður stundum ógeðslega reiður þegar maður verður fyrir svona framkomu,“ segir kona sem hefur starfað við afgreiðslu í hálfan áratug. 22. desember 2014 17:28 Stefna VR gegn ríkinu þingfest Stefna VR gegn íslenska ríkinu, vegna breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, 15. janúar. 15. janúar 2015 14:24 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Sjá meira
Dæmi um að afgreiðslufólk sé slegið utan undir í jólaösinni „Orðbragðið sem við þurfum að sitja undir er ólíðandi. Maður verður stundum ógeðslega reiður þegar maður verður fyrir svona framkomu,“ segir kona sem hefur starfað við afgreiðslu í hálfan áratug. 22. desember 2014 17:28
Stefna VR gegn ríkinu þingfest Stefna VR gegn íslenska ríkinu, vegna breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, 15. janúar. 15. janúar 2015 14:24