Erlent

Myndband náðist af samskiptum reiðra bílstjóra í London

Atli Ísleifsson skrifar
Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir um ástæður þess að til átakanna kom milli mannanna.
Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir um ástæður þess að til átakanna kom milli mannanna.
Myndband hefur verið birt af samskiptum tveggja reiðra bílstjóra í austurhluta London fyrr í mánuðinum. Lauk þeim með að annar þeirra ók sportbíl sínum á hinn.

Í frétt Independent segir að atvikið hafi átt sér stað í dagsbirtu á Curtain Road, nærri Old Street lestarstöðinni, þann 9. apríl síðastliðinn.

Á myndbandinu má sjá mennina öskra hvor á annan á meðan umferðin stíflast. Annar mannanna, sem af einhverjum ástæðum er ber að ofan, reynir að slá til hins inn um rúðuna. Sá reynir að lokum að keyra á þann sem hafði reynt að slá til hans. Sérstaka athygli vekur að sportbíllinn er með einkanúmerið „BOSSIN“.

Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir um ástæður þess að til átakanna kom milli mannanna.

Sjá má atvikið í myndbandinu að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×