Ísraelar segja nýjar upprunamerkingar ESB merki um gyðingahatur Atli Ísleifsson skrifar 11. nóvember 2015 15:03 Stjórnvöld í Ísrael hafa harðlega mótmælt ákvörðun ESB og segja hana hafa slæm áhrif á samband Ísraels og ESB. Vísir/EPA
Stjórnvöld í Ísrael segja ákvörðun Evrópusambandsins um að merkja vörur sem framleiddar eru á hernumdum svæðum vera merki um gyðingahatur. Avigdor Lieberman, utanríkisráðherra Ísraels, hefur líkt því við þá ákvörðun þýskra nasista að allir gyðingar skyldu ganga um með gula stjörnu. Framkvæmdastjórn ESB hefur ákvarðað að sérmerkja skuli alla þá ávexti, grænmeti og snyrtivörur sem framleiddar eru á hinum hernumdu svæðum – Vesturbakkanum, Gólanhæðum og austurhluta Jerúsalemborgar. Varðandi aðrar vörur frá svæðunum skuli það vera í sjálfsvald sett hvort þær séu merktar.Í frétt SVT kemur fram að samkvæmt hinum nýju reglum skulu vörurnar vera með merkingar í öllum 28 aðildarríkjum sambandsins þannig að neytendur sjái hvort varan komi frá Ísrael eða frá einu hinna hernumdu svæða. Samkvæmt alþjóðalögum er lagt bann við að nýta hernumið svæði til efnahagslegs ávinnings. Vörur frá þessum svæðum hafa til þessa verið merktar „Made in Israel“. Stjórnvöld í Belgíu, Danmörku og Bretlandi hafa fyrir nokkru tekið upp merkingar á vörum frá hernumdu svæðunum sem hefur neytt sambandið til að samræma stefnu aðildarríkjanna. Ákvörðun um sérstakar merkingar hefur ítrekað verið frestað, en hún byggir á fyrri ákvörðun utanríkisráðherra aðildarríkjanna frá árinu 2012. Stjórnvöld í Ísrael hafa harðlega mótmælt ákvörðun ESB og segja hana hafa slæm áhrif á samband Ísraels og ESB. Telja Ísraelar að um mismunun sé að ræða og að ESB hafi gengið til liðs við alþjóðlega hreyfingu sem vinnur að því að ísraelskar vörur skuli sniðgengnar.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Innlent Fleiri fréttir Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Sjá meira