Bush eldri úthúðar bæði Donald Rumsfeld og Dick Cheney Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. nóvember 2015 07:00 Rumsfeld og Cheney ásamt George W. Bush, þáverandi forseta, í Hvíta húsinu árið 2006. Fréttablaðið/EPA
George H.W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir Donald Rumsfeld hafa verið hrokagikk og Dick Cheney of mikinn harðlínumann í kjölfar árásanna 11. september 2001. Þeir hafi reynst syni sínum, George W. Bush, illa og viðbrögð þeirra við árásunum hafi verið vanhugsuð. Þetta er haft eftir Bush eldri í nýrri ævisögu hans, sem Jon Mecham skrifar og kemur út í næstu viku. Bush eldri gagnrýnir þar einnig son sinn fyrir æsingatal í kjölfar atburðanna 11. september, og nefnir þar sem dæmi að allt tal um „öxulveldi hins illa“ hafi ekki reynst hjálplegt. Þá gagnrýnir hann son sinn einnig fyrir að hafa látið Cheney, sem þá var varaforseti, komast upp með að halda úti „sínu eigin utanríkisráðuneyti“. Cheney var varnarmálaráðherra í stjórn Bush eldri árin 1989-93, en síðan varaforseti árin 2001-2009, þegar Bush yngri var forseti. Donald Rumsfeld var svo varnarmálaráðherra í stjórn Bush yngri árin 2001-2006. Bush segir að eftir 11. september hafi Cheney „orðið mikill harðlínumaður og mjög ólíkur þeim Cheney, sem ég þekkti og starfaði með“. Viðbrögðin við 11. september hafi verið heimskuleg: „Just iron-ass.“ Cheney sjálfur sagðist í gær vera nokkuð ánægður með þessa „járnsrass-líkingu“. Hann geti hreinlega verið stoltur af því: „Árásirnar 11. september voru verri en Pearl Harbour,“ sagði hann í viðtali við sjónvarpsstöðina Fox. Um Rumsfeld segir Bush síðan að þeir hafi aldrei verið mjög nánir hvort eð er: „Það er þarna ákveðinn skortur á auðmýkt, skortur á því að átta sig á því sem aðrir eru að hugsa.“ Hins vegar sagðist Bush eldri standa með syni sínum, þrátt fyrir allt: „Hann er sonur minn, hann gerði sitt besta og ég stend með honum. Það er svo einfalt.“
Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Fleiri fréttir Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Sjá meira