Ung börn farin að fá kryppu vegna mikillar snjallsímanotkunar 17. október 2015 16:30 Vinstra megin má sjá óeðliega boginn hrygg sautján ára stráks. Til hægri er sextán ára stúlka sem er byrjuð að mynda með sér kryppu. mynd/Carter
Myndirnar hér til hliðar sýna hvernig unglingar og börn allt niður í sjö ára aldur eru farin að þróa með sér kryppu og óeðlilega bogna hryggjarsúlu vegna mikillar notkunar á snjallsímum. Fjallað er um málið hjá Telegraph. Ástralskur kírópraktor hefur varað við því að það sem hann kallar „text-necks,“ sem gæti útlagst sem „síma-hálsar“ á íslensku og er tilkomið vegna ítrekaðrar símanotkunar, sé að verða að faraldri hjá ungum símanotendum. Dr. James Carter segir að heilkennið geti valdið töluverðum skemmdum á hryggjarsúlunni og að tilfellum hafi fjölgað hratt á undanförnum árum. Nú sé það svo að helmingur þeirra þjáðu sé börn á gagnfræðiskólaaldri. „Í stað þess að sveigjan sé fram á við eru sjúklingar að sýna merki þess að sveigjan á hryggjarsúlunni vísi aftur. Þetta getur valdið haus-, háls-, axlar- og bakverkjum,“ segir Carter. Sérfræðingar beggja vegna Atlantsála hafa tekið í sama streng og Carter. Áhrifa snjallsímanotkunnar er farið að gæta jafnt í Bandaríkjunum sem og Bretlandi.Háls sjö ára stráks fyrir (t.v.) og eftir (t.h.) meðferð vegna skekkju á hryggnum.mynd/carterRannsóknir gefa til kynna að fólk sé í snjallsímanum í allt að fjórar klukkustundir á dag. Það gera rúmar 1400 klukkustundir á ári sem fólk horfir niður á við og það getur leitt til töluverðs álags á stoðkerfið. Dr. Carter, sem er fyrrum formaður Ástralsku hryggjarrannsóknarstofnunarinnar , segir að hryggurinn geti færst um allt að fjóra sentímetra með síendurteknu niðurliti. Þrátt fyrir það telur hann að megi koma í veg fyrir slíka hliðrun með reglulegri hreyfingu og því sem hann kallar „eðlilegri notkun“ líkamans. Carter hvetur fólk einnig til að nota ekki fartölvur eða síma þegar það situr eða liggur uppi í rúmi. Þess í stað skuli tækjunum lyft í augnhæð svo að komast megi hjá óþarfa álagi á hrygginn.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Erlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Innlent Fleiri fréttir Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Sjá meira