Nýjum reglugerðum fylgi gífurlegur kostnaður fyrir svínabændur Jóhann Óli Eiðsson skrifar 4. október 2015 22:35 Tvær myndir sem sýna aðbúnað gyltna á búum Ingva en þær birtast í skýrslu MAST. myndir/mast „
Mér fannst tímabært að reyna að lyfta umræðunni á örlítið hærra plan,“ segir Ingvi Stefánsson svínabóndi í samtali við Vísi. Ingvi rekur tvö svínabú, annað þeirra er gyltubú í Pálmholti í Reykjadal og hitt er grísaeldisbú í Teigi, Eyjafjarðarsveit. Aðbúnaður á svínabúum hefur verið talsvert í umræðunni að undanförnu eftir að RÚV fjallaði um skýrslu Matvælastofnunar þar sem aðbúnaður á mörgum býlum er sagður óviðunandi. Ingvi telur að umfjöllunin hafi verið helst til of einhliða eins og kemur fram í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu hans. Ingvi bendir þar meðal annars á að úrbætur á regluverki svínaræktarinnar hafi verið fyrir löngu orðnar tímabærar en þar er til að mynda kveðið á um að allar gyltur skuli hafðar í lausagöngu. Kynbætur á svínum hér á landi, síðasta rúma áratuginn, hafa skilað miklum árangri og skrefið því nauðsynlegt fyrir þær. „Ég sé eftir því árið 2008 að hafa ekki horft lengra fram í tímann og stigið lengra en lög kváðu á um varðandi lausagöngu,“ skrifar Ingvi. Í samtali við Vísi segir hann að árið 2008 hafi hann keypt búið í Pálmholti og gert á því miklar endurbætur. Þær endurbætur séu hins vegar úreltar nú þær séu ekki samræmi við ný lög og reglur. „Það er samt erfitt fyrir reksturinn að þurfa að horfa á eftir fjárfestingunni enda líftími búnaðarins langt frá því að vera liðinn.“Ingvi ásamt eiginkonu sinni, Selmu Dröfn Brynjarsdótturmynd/ingviAðlögunartími minni hér en annarsstaðar Hingað til hefur Ísland verið örlítið eftir á samanborið við nágrannaþjóðir okkar. Ný reglugerð um aðbúnað svína mun hins vegar setja Ísland fremsta í flokk ásamt Norðmönnum. „Það er náttúrulega frábær þróun og henni ber að fagna en það má gera athugasemd við aðlögunartímann. Samanborið við löndin í kringum okkur fá svínabændur mun skemmri tíma til að koma málum hjá sér í stand og að auki þurfa þeir að greiða þær allar úr eigin vasa. Á sama tíma fá kollegar okkar úti styrki frá ríkisstjórnum og ESB,“ segir Ingvi við Vísi. Hvað lausagöngu gyltna í goti varðar að þá fá t.d. Norðmenn helminginn greiddan í formi styrks og Danir fjörutíu prósent. Á Íslandi eru tólf framleiðendur svínakjöts á 21 búi. Kostnaður við þær breytingar sem þarf að gera til að uppfylla skilyrði nýrra reglna er metinn um 3.200 milljónir. „Fyrir mitt bú, sem er kannski með um fimm prósent markaðshlutdeild, þýðir þetta í kringum 160 milljónir lauslega áætlað. Það er meira en ég velti á einu ári,“ segir Ingvi. „Mig langar alveg rosalega til að setja undir mig hausinn og fara í þessar fjárfestingar. Segja bara eins og við Íslendingar gerum svo oft „þetta reddast“ Auðvitað dreymir mig – sem bónda – um að fara í bættan aðbúnað þar sem gylturnar geta verið í lausagöngu bæði í geldstöðu og goti. Þannig myndi ég standa samhliða kollegum mínum í Noregi sem eru langt á undan öðrum þjóðum. Það væri svo sannarlega draumurinn,“ skrifar hann.Nýr tollasamningur skapar óvissu Auknar framkvæmdir þýða hins vegar aukinn framleiðslukostnaður og þar með að staða gagnvart innflutningi versni í samræmi við það. Nýir tollasamningar við Evrópusambandið hafa síðan í för með sér að staða kjötsins á markaði verður að öllum líkindum verri en hún er í dag. „Það sem mér finnst nú sárgrætilegast í þessu öllu saman er að ég hef afar litla trú á því að ávinningur af því að flytja inn ódýrara kjöt frá ESB muni skila sér í vasa neytenda, nema þá í mjög takmörkuðum mæli. Máli mínu til stuðnings bendi ég á að frá því í janúar 2013 til september á þessu ári hefur verð á svínakjöti til okkar bænda lækkað um tæp níu prósent. Á sama tíma hefur verðið til neytenda hækkað um fjögur til tíu prósent,“ skrifar hann. Í skýrslu MAST er að finna tvær myndir frá búum Ingva en þær myndir fylgja báðar fréttinni. Hann skrifar að það væri freistandi að fordæma kollega sína fyrir þær myndir sem birtast frá þeirra búum en það ætli hann hins vegar ekki að gera. Fyrir því séu nokkrar ástæður. „Sú fyrsta er sú að þessar myndir eru teknar fyrir meira en ári síðan og ég trúi því og treysti að MAST hafi í samstarfi við viðkomandi bú komið á úrbótum. Önnur ástæðan er sú að í landinu eru á bilinu 3600-3800 gyltur og ég vil ekki alhæfa út frá 5-10 ljótum myndum,“ skrifar hann. Hann bætir því síðan við að eflaust megi á einhverjum tímapunkti koma inn á bú í hans eigu og taka myndir af dýrum sem ekki séu til fyrirmyndar. „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.“Ágæti fésbókarvinur!Vil byrja á að vara við að þetta er mjög langur pistill :)Í ljósi umræðu síðustu daga um slæman...Posted by Ingvi Stefánsson on Sunday, 4 October 2015
Tengdar fréttir Lestu skýrslu Matvælastofnunar um velferð gyltna á Íslandi Lesendur Vísis geta skoðað skýrsluna í heild sinni. 2. október 2015 12:15 Gerðu athugasemdir við dýravelferð á 340 býlum Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu vegna þess sem kom fram í tilkynningu frá Bændasamtökunum í gær. 1. október 2015 12:33 Segir ekki koma til greina að skattgreiðendur borgi fyrir skussana Formaður Samfylkingarinnar telur fráleitt að íslenska ríkið taki þátt í kostnaðinum við að bæta aðstöðu á svínabúum svo þau uppfylli skilyrði. 1. október 2015 12:05 Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Fleiri fréttir Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda Sjá meira
Lestu skýrslu Matvælastofnunar um velferð gyltna á Íslandi Lesendur Vísis geta skoðað skýrsluna í heild sinni. 2. október 2015 12:15
Gerðu athugasemdir við dýravelferð á 340 býlum Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu vegna þess sem kom fram í tilkynningu frá Bændasamtökunum í gær. 1. október 2015 12:33
Segir ekki koma til greina að skattgreiðendur borgi fyrir skussana Formaður Samfylkingarinnar telur fráleitt að íslenska ríkið taki þátt í kostnaðinum við að bæta aðstöðu á svínabúum svo þau uppfylli skilyrði. 1. október 2015 12:05