Fengu ekki aðgang að prófheftinu í samræmda prófinu Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2015 12:15 Við fyrirlögn rafrænna prófa er notaður alþjóðlega viðurkenndur prófgerðarhugbúnaður sem nýttur hefur verið með góðum árangri í öðrum löndum, segir í tilynningu frá Menntamálastofnun. Vísir/Getty
Villa kom upp í prófakerfi þegar samræmt próf í ensku var lagt fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla í gær. Í tilkynningu frá Menntamálastofnun segir að samhliða venjulegri fyrirlögn enskuprófsins var áætlað að forprófa rafræna útgáfu þess meðal þrjú hundruð grunnskólanemenda í tólf grunnskólum. „Við forprófunina kom því miður upp villa í aðgangsstýringarhluta prófakerfisins sem olli því að nemendur fengu ekki aðgang að prófheftinu. Þegar var brugðist við með því að nemendur fengu í hendur hefðbundið próf á pappír og var gefinn jafnlangur tími og aðrir fengu til að leysa prófið. Við fyrirlögn rafrænna prófa er notaður alþjóðlega viðurkenndur prófgerðarhugbúnaður sem nýttur hefur verið með góðum árangri í öðrum löndum. Þegar er hafin vinna við að leita lausna til að fyrirbyggja að villa sem þessi endurtaki sig og mun Menntamálastofnun kalla eftir fundi hjá framleiðendum hugbúnaðarins á næstunni til að fara yfir þessi mál og leita úrbóta. Að mati Menntamálastofnunar munu rafræn próf leysa pappírspróf að mestu af hólmi í náinni framtíð og munu slík próf gagnast skólum, nemendum og stofnuninni sjálfri, við próftöku og yfirferð. Áður en lengra er haldið með innleiðingu rafrænna prófa þarf þó að bæta alla verkferla sem lúta að framkvæmd, kynningu og undirbúningi verkefnisins og mun starfsfólk Menntamálastofnunar vinna að því í samstarfi við skóla. Menntamálastofnun biður kennara og nemendur velvirðingar á þeim óþægindum sem þeir urðu fyrir vegna þessarar villu og vonar að hún hafi ekki haft neikvæð áhrif á þátttöku nemenda í enskuprófinu. Jafnframt þakkar stofnunin skólastjórnendum, kennurum, tæknifólki og nemendum sem tóku þátt í þessari tilraun fyrir aðstoð og þolinmæði og vonast eftir góðu samstarfi áfram um þróun rafrænna prófa,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira