Niðurníðsla húsa bönnuð í borginni Snærós Sindradóttir skrifar 24. september 2015 07:00 Brautarholt 20. Eigandi fasteignafélag ehf. Húsnæðið hýsti áður Baðhús Lindu Pétursdóttur en hefur staðið autt síðan það var flutt og var að endingu lokað. Mikið hefur verið kvartað yfir partístandi hjá óviðkomandi aðilum á efri hæðum hússins og svo fór að húsnæðinu var lokað að hluta svo ekki væri hægt að komast inn í það með ólöglegum hætti. Fréttablaðið/Pjetur
Brotnar rúður, veggjakrot, óþrifnaður og flögnuð málning. Þetta gæti verið lýsing á hreysi í verstu hverfum stórborga en á við um tómt verslunar- og þjónustuhúsnæði vítt og breitt um borgina, nálægt heimilum fólks og grunnskólum.Hjálmar Sveinssonvísir/stefánFréttablaðið fór á stúfana og tók myndir af þessu húsnæði. Í nokkrum tilfellum hefur það staðið autt um margra ára skeið. Í öðrum hefur það verið illa leikið á tveimur til þremur árum. „Borgin gaf út yfirlýsingu vorið 2011 um að niðurníðsla yrði ekki liðin, alveg sama hvar tiltekin hús eða lóðir væru í skipulagsferli. Það yrði beitt sektarákvæðum ef þeirri niðurníðslu yrði ekki kippt í liðinn,“ segir Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Hann segir að átakið hafi skilað góðum árangri á sínum tíma. „En ég þekki ekki nákvæmlega hvernig eftirlit með þessum hlutum er skipulagt, nema það er á hreinu að niðurníðsla á ekki að líðast.“Arnarbakki 2-4. Eigendur Stálvélar ehf., Tryggvi Agnarsson, KJ ehf. og fleiri. Húsnæðið er í miðju Bakkahverfinu og hýsti áður meðal annars myndbandaleigu. Nú standa yfir deilur á milli eigenda um viðhald og eignarhald. Aðstandendur hússins vildu ekki tjá sig við Fréttablaðið um hvort dagsektum hefði verið beitt. Hann segir eftirlitið að einhverju leyti flókið. Gjaldþrot félaga og yfirstandandi dómsmál geta seinkað afgreiðslu þessara mála. Haft var samband við eigendur Arnarbakka 2 í Breiðholti sem staðfestu að eigendadeilur væru meðal annars orsök þess í hvaða ástandi húsnæðið er. Þar eru hlerar fyrir gluggum og húsið allt hið hrörlegasta. Að sögn Hjálmars hefur Reykjavíkurborg verið mjög treg til þess undanfarin ár að samþykkja breytingar á deiliskipulagi á þann veg að þjónustuhúsnæði verði að íbúðarhúsnæði. Hann segir að það sé vegna þeirrar stefnu í nýju aðalskipulagi borgarinnar að reyna að gera hverfin sjálfbærari með því að glæða þjónustu inni í hverfunum aftur.Norðurbrún 2. Eigandi Sjónver ehf. Þetta tæplega ?500 fm verslunarhúsnæði stendur við hlið Hrafnistu. Þar var meðal annars verslunin 11-11 en húsnæðið stendur nú autt. Lóðin er skráð sem viðskipta- og þjónustulóð og er eign Reykjavíkurborgar.Hann segir að þessir kjarnar, í miðjum íbúðarhverfum, séu ekki áfellisdómur yfir stefnu borgarinnar um blandaða byggð. „Þetta sýnir kannski aðallega að það hefur verið stefna allt of lengi í borginni að hlúa ekki nóg að þessari þjónustu í hverfunum.“ Hjálmar segir uppbyggingu matvöruverslana á Granda vera skipulagsleg mistök. „En nota bene þá virðist þetta vera að breytast samanber að Bónus var að opna verslun í Skipholti. Þessir stóru aðilar í lágverðsverslunum virðast vera farnir að fatta að það getur verið góður bisness að reka hverfisverslanir.“ „Það er í stefnu borgarinnar að þétta byggðina, efla hverfin og fjölga í miðlægum hverfum og hverfum sem liggja vel við samgöngum. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi stefna borgarinnar sem er staðfest í aðalskipulaginu hefur áhrif á fjárfestinguna. Því miður er ekki hægt að segja að þetta gerist allt í einu. Því miður eru ákveðin hverfi þar sem þessi blöndun inni í hverfunum á erfitt uppdráttar,“ segir Hjálmar.Starmýri 2, sem snýr að Álftamýri. Eigandi Ísflex ehf. Þetta húsnæði stendur raunar ekki alveg autt. Þrátt fyrir að vera skráð sem viðskipta- og þjónustulóð er ljóst að einhver notar það sem geymslu fyrir verkfæri og annað þess háttar. Þá sjást inn um glugga þess sófar og borð og svo virðist sem fólk verji þar einhverjum tíma. Töluverður sóðaskapur er innandyra.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira