Afhendir heiðursviðurkenningar til þýðenda íslenskra bókmennta Atli Ísleifsson skrifar 10. september 2015 11:42 Forseti Íslands mun afhenda nýja heiðursviðurkenningu til þýðenda íslenskra bókmennta á Bessastöðum síðar í dag. Vísir/GVA
Forseti Íslands mun afhenda nýja heiðursviðurkenningu til þýðenda íslenskra bókmennta á Bessastöðum klukkan 17 í dag. Catherine Eyjólfsson, sem átt hefur ríka hlutdeild í að auka hróður íslenskra bókmennta í Frakklandi, og Erik Skyum-Nielsen, sem undanfarin fjörutíu ár hefur verið ötull og áhrifaríkur sendiherra íslenskra bókmennta í Danmörku, eru fyrst til að taka við viðurkenningunni. Miðstöð íslenskra bókmennta, Bandalag þýðenda og túlka, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, auk forsetaembættisisins standa að viðurkenningunni. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að heiðursviðurkenningin hafi hlotið nafnið Orðstír og verður veitt annað hvert ár, „einum eða tveimur einstaklingum sem hafa þýtt verk úr íslensku á annað mál með vönduðum hætti og með þeim árangri að aukið hafi hróður íslenskrar menningar á erlendum vettvangi. Hluti af viðurkenningunni er veglegur dvalarstyrkur sem er ætlað að auðvelda þýðendum að styrkja tengslin við íslenska menningu.“Hefur þýtt tugi verka á dönsku „Erik Skyum-Nielsen hefur þýtt tugi íslenskra verka á dönsku, þar á meðal fornsögur og eddukvæði en einnig ljóð, skáldsögur og leikrit eftir samtímahöfunda, m.a. Svövu Jakobsdóttur, Einar Má Guðmundsson, Thor Vilhjálmsson, Stefán Hörð Grímsson, Birgi Sigurðsson, Fríðu Á. Sigurðardóttur, Gyrði Elíasson og Gerði Kristnýju. Samhliða hefur Erik fjallað um íslenskar bókmenntir í ræðu og riti við margvísleg tækifæri.Þýtt skáldsögur og ljóð á frönsku Catherine Eyjólfsson hefur einnig þýtt tugi íslenskra verka, skáldsögur og ljóð á frönsku og meðal þeirra eru verk eftir mörg íslensk skáld, svo sem Auði Övu Ólafsdóttur, Einar Má Guðmundsson, Guðberg Bergsson, Guðrúnu Evu Mínervudóttur, Gyrði Elíasson, Ingibjörgu Haraldsdóttur, Lindu Vilhjálmsdóttur, Pétur Gunnarsson, Sigurbjörgu Þrastardóttur, Sjón, Steinunni Sigurðardóttur og Svövu Jakobsdóttur. Sum þessara verka hafa verið tilnefnd til virtra verðlauna, nú síðast þýðing Catherine á Svari við bréfi frá Helgu eftir Bergsvein Birgisson sem tilnefnd er til verðlauna sem háskólinn í Lille veitir höfundi og þýðanda í sameiningu. Í stjórn verðlaunanna sitja Jón Karl Helgason, sem jafnframt er formaður, Kristjana Rós Guðjohnsen, Magnea Matthíasdóttir, Stella Soffía Jóhannesdóttir og Örnólfur Thorsson,“ segir í tilkynningu.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira