70 milljónir til að fjölga sálfræðingum í heilsugæslu Bjarki Ármannsson skrifar 13. september 2015 09:59 Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Vísir/Pjetur
Stefnt er að því að fjölga stöðugildum sálfræðinga í íslenskri heilsugæslu um átta á næsta ári. Stöðugildi sálfræðinga á öllu landinu eru nú fimmtán en þessi aukning er sögð liður í því að efla þjónustu heilsugæslu á landinu og bæta aðgengi að henni. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs er samtals gert ráð fyrir að verja tæpum 69 milljónum króna til þess að ráða sálfræðinga til starfa. Fjárframlög til heilbrigðisstofnana Vesturlands, Norðurlands, Austurlands og Suðurlands verða samtals aukin um 34.4 milljónir vegna þessa og aðrar 34.4 milljónir fara til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einn sálfræðingur ætti því að vera ráðinn á hverja af stofnunum fjórum á landsbyggðinni og fjórir á höfuðborgarsvæðinu. Að því er segir í frétt á vef velferðarráðuneytisins er áætlað að eitt stöðugildi sálfræðings þurfi á hverja níu þúsund íbúa, miðað við breska átakið „Improving Access to Psychological Therapies.“ Það þýðir að þörf sé á samtals 36,6 stöðugildum hér á landi en eftir þessa breytingu verða stöðugildin samt sem áður aðeins 23 á landsvísu. Í fréttinni er haft eftir Kristjáni Þóri Júlíussyni heilbrigðisráðherra að hann vilji áfram fjölga sálfræðingum til samræmis við þessi viðmið og fjölga þannig um fjórtán stöðugildi til viðbótar árin 2017 og 2018. „Það hefur lengi verið vitað að umtalsverður hluti fólks sem leitar til heilsugæslunnar glímir við vandamál þar sem menntun og þekking sálfræðinga gæti komið að góðum notum, eins og kvíða, þunglyndi, svefnvandamál og fleira mætti telja,“ er haft eftir Kristjáni. „Með þessu móti eflum við heilsugæsluna og sníðum þjónustu hennar betur að þörfum notenda. Á því leikur enginn vafi.“
Mest lesið Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Gosmóðan heldur áfram Innlent Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Erlent Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Fleiri fréttir Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum Sjá meira