Braust inn í hjólhýsi í Fossvogi og dvaldi þar í leyfisleysi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 16. september 2015 07:00 Margrét á hjólhysi af sambærilegri gerð og það sem sést á þessari mynd.
Karlmaður braust inn í hjólhýsi í Fossvoginum og talið er að hann hafi búið þar um nokkurt skeið. Hjólhýsið er fyrir utan heimili eigandans, Margrétar Auðunsdóttur, og er lagt tæpum hálfum metra frá bílskúrnum. Margrét gengur því fram hjá hjólhýsinu á hverjum degi. Hún segir að orðið sem lýsi þessum manni best sé bíræfni. „Hann hefur hugsanlega verið í hjólhýsinu um nokkurt skeið. En honum tókst að leynast alveg ótrúlega. Ég uppgötvaði þetta þegar ég opnaði hjólhýsið fyrir tæpum tveimur vikum og sá ummerkin eftir hann. Þá hringdi ég á lögregluna,“ segir Margrét. Margrét er mjög fegin að maðurinn hafi ekki verið í hjólhýsinu þegar hún opnaði dyrnar. „Sem betur fer. Því ef fólk er króað af veit maður ekki hvað það getur tekið til bragðs. Hann reiknaði þetta vel út. Það var dregið frá stórum hluta hjólhýsisins allan tímann og ég horfði inn í það reglulega. Hann passaði að það sæjust engin ummerki og dvaldi í litlu horni inni í hýsinu. Þetta vekur óneitanlega óhug og öryggisleysi.“Illa farið eftir veru mannsins Hjólhýsið er afar skítugt og illa farið eftir veru mannsins. „Ég þarf að senda hjólhýsið í þrif og býst við að standa straum sjálf af þeim kostnaði. Hjólhýsið er tryggt en það er sjálfsábyrgð,“ segir Margrét og tekur fram að hjólhýsið hafi verið læst og vel vaktað af heimilismönnum. Hún hvetur því fólk til að líta vel eftir hjólhýsum sínum. Benedikt Lund lögreglufulltrúi segir manninn vera þekktan í hverfinu. „Þetta er vesalings maður sem ráfar um og fer í öll þau skýli sem hann finnur. Hann fór til dæmis í kofa sem börn byggðu sér og hafði aðsetur þar í smá tíma.“ Benedikt segir manninn ekki vilja þiggja aðstoð borgarinnar eða dvelja í gistiskýlum. „Það er lítið sem lögreglan getur gert, nema hann sé ákærður fyrir húsbrot. En lögreglan er ekki með nein félagsleg úrræði. Það er ekki gott að eiga við svona mál.“
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira