Þakklátur Íslandi og gerðist slökkvistjóri Snærós Sindradóttir skrifar 16. september 2015 07:00 Yordan Yordanov sést hér halda á skiltinu sem hangir í Raggagarði, skemmtigarði í Súðavík. Hann er einn styrktaraðila garðsins. Mynd/aðsend „
Við erum nokkrir sem erum alltaf kallaðir út, hvort sem er í snjó eða eld,“ segir Yordan Yordanov, slökkviliðsstjórinn og formaður björgunarsveitarinnar í Súðavík. Yordan er frá Búlgaríu og er eini erlendi slökkviliðsstjórinn á landinu. Yordanov kom hingað til lands þann 20. apríl 1996 í leit að betra lífi. „Segjum bara hreint og beint að lífið var ekki eins og eðlilegri manneskju finnst að það ætti að vera, á þeim slóðum sem ég kom frá. Hugmyndin var fyrst að vinna í nokkur ár og fara svo.“ En stuttu eftir komuna til landsins lenti Yordan í slysi, þegar lyftari keyrði yfir fótinn á honum. Hann var frá vinnu í fjórtán mánuði vegna slyssins og er metinn 40 prósent öryrki í dag. „Móttakan sem ég fékk á spítalanum og bara allt í kringum mig leyfði mér ekki að fara. Ég sagði við sjálfan mig að þetta fólk væri búið að gera svo mikið fyrir mig að það væri ósanngjarnt ef ég færi bara. Ég hef samt aldrei verið á bótum eða hætt að vinna.“ Fyrst bjó Yordan í Hnífsdal, sem er hluti af Ísafjarðarbæ, en flutti til Súðavíkur ásamt konu sinni sem þá var komin til landsins þann 1. apríl 1998. „Við fluttum hingað 1. apríl upp á grín. Við erum enn þá hérna, upp á grínið.“ Hann taldi sig hæfan í slökkviliðsstjórastarfið og gaf því kost á sér. „Ég var í sérher úti í Búlgaríu og það barst manna á milli að ég kynni að gera þetta. Það voru auðvitað aðrir á undan mér en allt í einu kemur bara sá tími að margir eru fluttir frá. Stundum á maður bara að taka við.“ „Mér finnst það sjálfum stundum skrítið, að af öllum þessa stóra heimi hafi ég valið þennan litla stað. En ég er enn þá hérna og er ekkert á förum. Í svona litlu samfélagi breytir engu hvað þú heitir. Aðalmálið er að þú komið þér að verki og hjálpir til.“ Yordan segir að þó hann hafi í fyrstu ekki farið af því að honum fannst hann skulda samfélaginu í kjölfar slyssins, sé það ekki þannig lengur. „Ég er búinn að vera hér í nítján ár og hef í raun og veru unnið lengur hér á Íslandi en úti í Búlgaríu. Hann sé búinn að borga það sem gert var fyrir hann en vilji gjarnan vera hér áfram.
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira