Hörður og Bryndís bjóða sig fram til formennsku í Heimdalli Atli Ísleifsson skrifar 16. september 2015 10:28 Hörður Guðmundsson, frumkvöðull og stúdent, og Bryndís Bjarnadóttir stjórnmálafræðinemi.
Hörður Guðmundsson, frumkvöðull og stúdent, gefur kost á sér sem formaður Heimdallar á aðalfundi félagsins þann 22. september næstkomandi. Bryndís Bjarnadóttir stjórnmálafræðinemi gefur kost á sér sem varaformaður Heimdallar. Í tilkynningu segir að framboðið vilji leggja áherslu á að efla ungt fólk enn frekar til áhrifa í stjórnmálum og standa vörð um einstaklingsfrelsi og málefni ungs fólks. „Borgarstjórn Reykjavíkur hefur misst sjónar á því að skapa hér samfélag sem laðar að ungt fólk til búsetu. Við viljum auka þátttöku ungs fólks í ákvarðanatökum á vettvangi borgarstjórnar, tryggja lækkun útsvars, standa vörð um einstaklingsfrelsi íbúanna og forgangsraða skattfé í þágu íbúanna en ekki í þágu gæluverkefna stjórnmálamanna. Umfram allt þarf að berjast gegn forræðishyggju stjórnvalda og stuðla að frjálsara, friðsælla og betra samfélagi fyrir alla. Þá leggur framboðið ríka áherslu á að virkja og efla starfið í Heimdalli og hefur nú þegar fengið á bak við sig stóran hóp af öflugu ungu fólki, staðráðið í að efla stærsta stjórnmálaafl ungs fólks á landinu. Kosningamiðstöð Harðar og Bryndísar er staðsett í Hátúni 12. Þangað eru allir velkomnir eftir kl. 17 alla daga fram að aðalfundi. Heitt verður á könnunni og frambjóðendur tilbúnir í spjall um allt það sem brennur á ungu fólki í Reykjavík. Hörður er 19 ára og einn meðstofnanda Study Cake, fyrirtækis úr röðum StartUp Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands (VÍ) vorið 2015 og var virkur í félagslífi skólans á námstímanum. Sat hann m.a. í markaðsnefnd Nemendafélags VÍ 2012-2013, stjórn Verzlunarskólablaðsins 2014-2015 auk þess sem hann stofnaði Seðlabanka NFVÍ sem hélt uppi fræðslu um viðskipta- og efnahagsmál. Hörður hefur starfað sem blaðamaður hjá Luxemburger Wort og hjá KPMG í Luxemborg. Hörður hefur verið virkur í starfi Heimdallar síðan 2011. Bryndís er 22 ára stjórnmálafræðinemi við Háskóla Íslands.Hún lauk stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík (MR) vorið 2013 og tók virkan þátt í félagslífi skólans. Hún sat m.a. í ritnefnd Skólablaðsins Skinfaxa og lagatúlkunarnefnd skólans. Bryndís hefur verið virk í starfi Heimdallar frá 2013 en hún sat í stjórn Heimdallar 2013-2014 og 2014-2015. Í sumar stundaði hún nám í stjórnmálafræði við Colombia háskóla í New York. Með Herði og Bryndísi standa tíu einstaklingar sem bjóða fram krafta sína í stjórn Heimdallar. Þau eru: Andrea Björk Elmarsdóttir laganemi við Háskólann í Reykjavík og stúdent úr Verzlunarskóla Íslands, Andrea Gunnarsdóttir stúdent úr Verzlunarskóla Íslands og situr í stjórn ungmennaráðs UN Women, Ágúst Páll Haraldsson stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík og starfsmaður Arion banka, Árni Steinn Viggósson, viðskiptamaður og stúdent úr Verzlunarskóla Íslands, Haraldur Garðarsson nemi við Iðnskólann í Reykjavík, Indiana Svala Ólafsdóttir starfsmaður Rio Tinto Alcan, Karólína Ólafsdóttir nemi við Verzlunarskóla Íslands og fjármálastjóri Nemendamóts Verzlunarskóla Íslands, Sara Árnadóttir, verkfræðinemi við HR, Sigurgeir Jónasson, stúdent úr Verzlunarskóla Íslands og starfsmaður Epli, Vífill Sverrisson, tölvunarstærðfræðinemi við Háskóla Íslands og stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira